Til Grænlands frá Íslandi
Á aðeins 2 klukkustundum er hægt að komast til Grænlands frá
Íslandi og heimsækja bæinn Kulusuk.
Hrikalegt landslag
Ferð á slóðir nágranna okkar í norðri er engu lík. Tröllauknir
borgarísjakar lóna úti fyrir þorpinu, þar sem húsin eru svo
litskrúðug og virðast mega sín lítils í ógnvekjandi náttúrunni.
Á leið inn í nútímann
Í Kulusuk sem er í Ammassalik héraði, má enn sjá leifar af gamla
grænlenska veiðisamfélaginu. Elstu íbúarnir eru fæddir inn í
aldagamlar hefðir, þar sem verklag og lifnaðarhættir höfðu verið
þeir sömu um aldaraðir.
Gangan að bænum
Grænlendingar eru miklir gestgjafar og mjög skemmtilegir að
heimsækja. Ganga frá flugvellinum tekur um 40 mínútur. Meðfram
stígnum milli flugvallarins og þorpsins eru hlaðnir haugar, sem
þegar betur er að gáð, eru grafir forfeðranna.
Skortur á jarðvegi gerir það að verkum að grjóti er hlaðið utan um
hina látnu til að halda rándýru, fuglum og öðrum óvinsælum gestum
frá.
Gangur lífsins
Nýi kirkjugarðurinn sem stendur eilítið frá þorpinu er ótrúleg
sjón í þessu hörkulega landslagi. Plastblóm skreyta leiðin, en
engin nöfn eru á hvítum krossunum. Trú Grænlendinga er sú að sálin
lifi áfram og því fá nýfædd börn nöfn hinna látnu.
Menningararfurinn
Í Kulusuk bjóða heimamenn upp á skemmtidagskrá fyrir ferðamenn
þar sem m.a. eru sýndar aðferðir veiðimanna á kayökum, síðan
eru sungnir ævagamlir veiðimannasöngvar, sem varðveist hafa í
munnlegri geymd.
Að sýningu lokinni má ganga upp að Stórasteini þar sem veiðimenn
hafa í aldanna rás farið til að skima eftir bráð sinni. Þar er
útsýni gott. Ótrúlega fallegt handverk er hluti af
menningararfinum og minjagripir eru geysifallegir.
Frá Kulusuk má fara í ýmsar ævintýrareisur, svo sem
veiðiferðir sem taka 2-3 daga, hundsleðaferðir, eða sjóferðir.
Grænland er staður sem ferðalangurinn verður að upplifa sjálfur, og
því ekki bara að taka flugið til Kulusuk?
Flugvallaupplýsingar
Heimasíða