Færeyjar
Burt úr bænum
www.visit-faroeislands.comwww.faereyjaferdir.is
Fegurð Færeyjanna 18 á sér fáa líka. Þeir frændur vorir, sem búa í þorpum og bæjum við ströndina líkt og við, eru 46.000 talsins. Færeyjar eru væntanlega eini staðurinn í heiminum þar sem Íslendingar geta mögulega gert sig skiljanlega á eigin tungu þó með hæfilegri blöndu af skóladönsku!Hægt er að keyra milli þriggja stærstu eyjanna, Eysturoy, og Streymoy, þar sem Vaagar flugvöllur og höfuðstaðurinn Þórshöfn eru staðsett. Til annarra eyja þarf að taka ferjur.
Ólafsvakan sem haldin er 28.-29. júlí ár hvert er svo tilvalið tækifæri til að reyna á danskunnáttuna, en þá gengur maður undir mann til að skemmta sér og gestum sínum. Eftir kappróður, aðra leiki og húllumhæ, nær hátíðin svo hámarki með færeyskum dansi og dyrasnafsi, þar sem götur Þórshafnar bókstaflega iða af mannlífi.
Ferðamálskrifstofa Færeyja er í Þórshöfn. Sérstaklega skal bent á hinar hugmyndaríku útfærslur minjagripa sem finna má í verslunum í höfuðstaðnum.
ATLANTIC AIRWAYS p/fFaroe IslandsVagar AirportFO-380 SoervagurFaroe Islands
Sími (00) 298 34 10 00Fax (00) 298 33 33 80