Ittoqqortoormiit (Constable Point)
Ittoqqortoormiit, eða „staðurinn með stóru húsunum“, er eitt fámennasta byggðarlag Grænlands en engu að síður þriðja stærsta sveitarfélagið í landinu. Þorpið stendur við Scoresbysund, sem ásamt smáfjörðum sínum telst vera stærsta fjarðasvæði í heiminum og um leið lengsti fjörður í heimi. Á Ittoqqortoormiit-svæðinu eru í boði villibráðarveiði, ævintýraferðir á sjókajak eða hundasleðum ásamt þægilegum siglingum og gönguferðum. Dýralífið í þjóðgarðinum norður af Ittoqqortoormiit er einstakt en þar lifa fjölbreyttar tegundir spendýra og fugla. Samfélagið í Ittoqqortoormiit er eitt síðasta veiðimannasamfélagið í heiminum og tvinna þar margir veiðimenn saman veiðar og þjónustu við ferðamenn. Flugfélag Íslands flýgur tvisvar í viku til Mittarfik Nerlerit Inaat eða Constable Point-flugvallar og reglulegar þyrluferðir eru þaðan til Ittoqqortoormiit. Sífellt fleiri ferðamenn nota Constable Point sem bækistöð fyrir ferðir sínar út í óbyggðirnar þar sem margvíslegir möguleikar til gönguferða, veiðitúra og skíðaferða eru fyrir hendi. Upplýsingar um ferðir með leiðsögumönnum fást hjá NANU Travel í síma 00299 99 12 80 og á vefsíðunni www.nanu-travel.com.