English  Dansk
Forsíða

Austur- Grænland- Kulusuk

Pakkar

Dagsferð

 

Tenglar

www.arcticwonder.com

Til Grænlands frá Íslandi

Á aðeins 2 klukkustundum er hægt að komast til Grænlands frá Íslandi og heimsækja bæinn Kulusuk.


 

Hrikalegt landslag

Ferð á slóðir nágranna okkar í norðri er engu lík. Tröllauknir borgarísjakar lóna úti fyrir þorpinu, þar sem húsin eru svo litskrúðug og virðast mega sín lítils í ógnvekjandi náttúrunni. 


Á leið inn í nútímann

Í Kulusuk sem er í Ammassalik héraði, má enn sjá leifar af gamla grænlenska veiðisamfélaginu. Elstu íbúarnir eru fæddir inn í aldagamlar hefðir, þar sem verklag og lifnaðarhættir höfðu verið þeir sömu um aldaraðir.


Gangan að bænum

Grænlendingar eru miklir gestgjafar og mjög skemmtilegir að heimsækja. Ganga frá flugvellinum tekur um 40 mínútur. Meðfram stígnum milli flugvallarins og þorpsins eru hlaðnir haugar, sem þegar betur er að gáð, eru grafir forfeðranna.

Skortur á jarðvegi gerir það að verkum að grjóti er hlaðið utan um hina látnu til að halda rándýru, fuglum og öðrum óvinsælum gestum frá.

Gangur lífsins

Nýi kirkjugarðurinn sem stendur eilítið frá þorpinu er ótrúleg sjón í þessu hörkulega landslagi. Plastblóm skreyta leiðin, en engin nöfn eru á hvítum krossunum. Trú Grænlendinga er sú að sálin lifi áfram og því fá nýfædd börn nöfn hinna látnu.

Menningararfurinn

Í Kulusuk bjóða heimamenn upp á skemmtidagskrá fyrir ferðamenn þar sem m.a. eru sýndar aðferðir veiðimanna á kayökum, síðan eru sungnir ævagamlir veiðimannasöngvar, sem varðveist hafa í munnlegri geymd.

Að sýningu lokinni má ganga upp að Stórasteini þar sem veiðimenn hafa í aldanna rás farið til að skima eftir bráð sinni. Þar er útsýni gott. Ótrúlega fallegt handverk er hluti af menningararfinum og minjagripir eru geysifallegir.

Frá Kulusuk má fara í ýmsar ævintýrareisur, svo sem veiðiferðir sem taka 2-3 daga, hundsleðaferðir, eða sjóferðir. Grænland er staður sem ferðalangurinn verður að upplifa sjálfur, og því ekki bara að taka flugið til  Kulusuk?
 

Flugvallaupplýsingar

GREENLANDAIR
Grönlandsfly A/S
Greenland
P.O. Box 1012
DK-3900 Nuuk
Greenland

Sími (00) 299 34 34 34
Fax (00) 299 32 88 36  

Brottfarardagur
Veldu dagsetningu
Heimkoma
Veldu dagsetningu
Lokafargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og eru ekki bókanleg
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára
Inspired by Iceland