English  Dansk
Forsíða

Útivist og ævintýri
Narsarsuaq
Suður - Grænlandi

 

Spennandi ævintýraferðir, stangveiðiferðir og gönguferðir



Suður-Grænland er landsvæði þar sem eru miklar andstæður og er þekkt fyrir blómum skrýddar sléttur og frjósama dali, hafís-fyllta firði, fjölda jökla og fjallasvæði sem auðugt er að jarðefnum. Á þessu svæði er velþróaður landbúnaður þar sem eru víðáttumikil beitarsvæði fyrir fé og hross og einhverjar best varðveittu byggingarrústir norrænna manna.

Hvort sem þú hafur áhuga á sögu Inúíta eða sögu norrænna manna, hafís eða jarðefnum og steintegundum af öllum gerðum, skotveiðum og stangveiðum eða bara stórbrotnu landslagi, þá býður Suður-Grænland upp á allt þetta.

Bæirnir Narsaq, Qaqortoq, Nanortalik og sameiginlegur útgangspunktur frá Narsarsuaq eru sérstaklega góðir upphafsstaðir þaðan sem hægt er að kynnast menningu og náttúru svæðisins. Samt sem áður eru litlir staðir þar sem fram fer fjárbúskapur eins og Qassiarsuk, Igaliku og Alluitsup Paa einnig vinsælir ferðamannastaðir.

Stuttar dagsferðir og ferðamannastaðir á Suður-Grænlandi bjóða upp á eitthvað fyrir alla: Gönguferðir, stangveiði, sumarfrí á sveitabýli og skoðunarferðir að fornleifarústum þar sem áður voru kirkjur og býli norrænna manna, eða meira krefjandi ferðareynslu eins og siglingar á kajökum eða fjallgöngur svo að einungis fáir valkostir séu nefndir.

Firðir á Suður-Grænlandi eru tilvaldir til að stunda siglingar, og í botni fjarðanna er oft að sjá marga stórbrotna jökla, sem sums staðar má komast að fótgangandi. Nokkrir jöklanna eru sérstaklega afkastamiklir skriðjöklar og þess vegna má sjá marga ísjaka í Suður- Grænlandi.

Við bjóðum upp á stórfenglegar pakkaferðir til Narsarsuaq


Upplifðu stórkostlega strandlengjuna frá Narsarsuaq til Nuuk með Arictic Umiaq Line og margbrotna náttúrufegurð með Blue Ice.



 


Brottfarardagur
Veldu dagsetningu
Heimkoma
Veldu dagsetningu
Lokafargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og eru ekki bókanleg
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára
Inspired by Iceland