Nuuk - veiði og hótel Nuuk - veiði og veiðihús Nuuk - hreindýraveiði
www.aul.gl www.blueice.gl www.southgreenland.gl
Höfuðstaður Grænlands Nuuk merkir „höfðinn“ og er yst á stórum skaga í mynni risavaxins fjarðaklasa. Nuuk er einnig elsti bær á Grænlandi.Nuuk er erilsöm borg miðað við grænlenskar aðstæður en það er sjaldan sú mynd sem ferðamenn fá af minnstu höfuðborg heims með einungis 15.000 íbúa.Utan Nuuk er mjög stór fjarðaklasi sem hentar sérstaklega vel fyrir ferðamannaþjónustu á hafi. Hvalaskoðunarferðir eru í boði sem gera þér kleift að nálgast þann fjölda hnúfubaka og hrefna, sem frá því snemma sumars þangað til haustið gengur í garð hafast oft við inni á hafsvæðinu rétt utan við bæinn. Auk þess eru þyrluferðir út á hafísbreiðuna og til hinna sögulegu rústa norrænna manna vinsælar ferðir sem samsettar er úr mörgum þáttum, eins og bátsferðir til ýmissa smábyggða. Einnig er mælt með því að skoðuð séu listasafnið og salur borgarstjórnar sem skreytt er stórum veggteppum með fyrirmyndum og mynstrum úr Grænlenskri menningu og náttúru. Við bjóðum upp á stórfenglegar pakkaferðir til Nuuk. Pakkaferðir með hótelgistingu, stangaveiði, gönguferðir eða veiðiferðir eru fáanlegar hjá Flugfélagi Íslands. Nánari upplýsingar á www.aul.gl www.blueice.gl www.hhe.glwww.64.glwww.nuuk-tourism.gl