Vopnafjörður
www.vopnafjordur.is
Vopnafjörður er einn af veðursælustu stöðum landsins, og hefur því stundum verið kallaður "litla Mallorca". Á Vopnafirði má finna sér margt að gera, meðal annars fara í sjóstangaveiði, fuglaskoðunarferðir, hestaferðir frá Syðri-Vík eða renna fyrir silungi í ám og vötnum.
Nokkrar af þekktustu laxveiðiám landsins eru í héraðinu, Hofsá, Selá og Vesturdalsá.
Það er tilvalið að fljúga til Vopnafjarðar og tekur ferðalagið með millilendingu á Akureyri aðeins um tvo og hálfan klukkutíma.
Flugfélag ÍslandsVopnafjarðarflugvelli690 VopnafjörðurSími 473 1121Fax 473 1421 netfang: vpnap@flugfelag.is