English  Dansk
Forsíða

Vilt þú vinna hjá Flugfélagi Íslands?


Flugfélag Íslands er markaðsdrifið þjónustufyrirtæki, leiðandi í farþega- og fraktflutningum, og þjónar flugrekendum og aðilum í ferðaiðnaði.

Eitt af markmiðum félagsins er að hafa ætíð á að skipa hæfum og liprum liðsmönnum sem sýna frumkvæði og hafa gaman af vinnunni sinni. Hjá Flugfélagi Íslands starfa um 260 manns sem allir gegna lykilhlutverki í starfseminni.
Starfsemin er fjölbreytt og taka störfin og vinnutími mið af því.  Hjá Flugfélaginu má ma. finna eftirtalin störf; flugþjónustumaður, hlaðmaður, skrifstofumaður, bókari, sölufulltrúi, þjónustufulltrúi, flugmaður, flugfreyja, flugþjónn, flugvirki, flugumsjónarmaður, lagermaður, afgreiðslumaður, rafeindavirki, vélvirki auk stjórnenda og sérfræðinga á ýmsum sviðum.  Starfsemin fer fram í Reykjavík, á Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði og í Vestmannaeyjum.

Hér fyrir neðan er að finna þau störf sem auglýst eru laus til umsóknar hverju sinni en einnig er hægt að leggja inn almenna umsókn. 
Athugaðu að ekki er fullnægjandi að fylla út almenna umsókn ef verið er að sækja um sérstaklega auglýst störf  - þá þarf að sækja um auglýst starf á umsóknareyðublaði sem fylgir því starfi og er hluti af auglýsingunni staðsett neðst í henni (sækja um).



Almenn umsókn

Ef þú ert að sækja um auglýst starf þarftu að fylla út umsókn sem fylgir því starfi og er að finna neðst í viðkomandi auglýsingu. Almennum umsóknum er ekki svarað sérstaklega nema haft sé samband við umækjanda og til frekari úrvinnslu komi.

Sækja um

Flugvirkjar og nemar í flugvirkjun

 
Flugfélag Íslands áformar að ráða flugvirkja og flugvirkjanema til starfa í viðhaldsstöð félagsins á Reykjavíkurflugvelli.
 
Starfið; Öll störf sem að starfsgreininni lúta og heyra undir viðhaldsdeild félagsins. Nemar vinna undir handleiðslu flugvirkja í samræmi við nemasamninga.
 
Hæfniskröfur;
Flugvirkjar; hafa lokið námi í flugvirkjun frá viðurkenndum skóla.
Flugvirkjanemar; hafa lokið undirbúningsnámi í flugvirkjun frá viðurkenndum skóla.
Heiðarleiki og metnaður til að skila góðu verki.
Góðir samskiptahæfileikar og jákvætt hugarfar.
Dugnaður og áhugi á að takast á við fjölbreytt starf og krefjandi verkefni.
 
Umsóknarfrestur; umsóknarfrestur er til og með 8. ágúst 2010.
Einungis er tekið við umsóknum á heimasíðu félagsins www.flugfelag.is, á þar til gerðu eyðublaði.
  
 
Sækja um

Brottfarardagur
Veldu dagsetningu
Heimkoma
Veldu dagsetningu
Lokafargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og eru ekki bókanleg
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára
Inspired by Iceland