English  Dansk
Forsíða
10.3.2010 Verkfall flugumferðarstjóra Verkfall flugumferðarstjóra hófst kl. 07 í morgun 10. mars og stendur til kl 11.

Verkfallið mun að líkindum hafa áhrif á hátt í fimmtán ferðir á vegum Flugfélags Íslands í dag.  Í þeim vélum eru bókaðir um fjögur hundruð farþegar.
4.3.2010 Erlendum gestum í febrúar fjölgaði um 2 þúsund Um 20 þúsund erlendir gestir fóru frá landinu um Leifsstöð í febrúarmánuði síðastliðnum, tvö þúsund fleiri en í febrúar árið 2009. Þannig komu álíka margir í febrúar í ár og árið 2008 sem var þá fjölmennasti febrúarmánuður frá upphafi talninga í Leifsstöð.  
16.2.2010 Fjöldi ferðamanna árið 2009 Heildarfjöldi ferðamanna til Íslands um Leifsstöð árið 2009 voru 464.536 miðað við 472.662 árið 2008. Fækkun um Leifsstöð er því 1,7%.
16.2.2010 Ferðalög Íslendinga um eigið land árið 2009
9.2.2010 Eyrarrósin afhent á Bessastöðum mánudaginn 15.02.2010

Eyrarrósin, sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, verður afhent á Bessastöðum mánudaginn 15. febrúar kl. 16.00 og er það í sjötta sinn sem viðurkenningin er veitt. Þrjú verkefni hafa verið tilnefnd úr hópi umsækjenda: tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði eystra, Eiríksstaðir í Haukadal og Skjaldborg - heimildarmyndahátíð á Patreksfirði.


9.2.2010 Gífurlegur áhugi á Klinktilboði

Í morgun kl. 10:00 bauð Flugfélag Íslands 500 sæti á nettilboði fyrir aðeins kr. 2990 aðra leið innanlands og er óhætt að segja að viðtökur hafi verið góðar.


8.2.2010 Flugfélag Íslands tilnefnt sem Besta markaðsherferðin á netinu 2009
21.1.2010 Flugvél lendir í mikilli ókyrrð Flugvél Flugfélags Íslands á leið frá Ísafirði, eftir að hafa hætt við lendingu þar, lenti í mikilli ókyrrð þegar flogið var uppúr Skutulsfirðinum
11.1.2010 375.000 farþegar hjá Flugfélagi Íslands árið 2009,

Fjöldi farþega Flugfélags Íslands var um 375.000 farþegar á árinu 2009 sem er samdráttur uppá um 11% frá fyrra ári. Fjöldi farþega í innanlandsflugi var um 350.000 og dróst saman um 12% en fjöldi farþega í millilandaflugi var um 25.000 sem er 12% aukning frá fyrra ári.



5.1.2010 Flug milli Vestmannaeyja og Reykjavík

Flugfélag Íslands og Vegagerðin hafa gert með sér samkomulag um framlengingu á flugi milli Vestmannaeyja og Reykjavík. Gildir samningurinn til 31.júlí 2010. Samkvæmt óbreyttu mun Flugfélag Íslands hætta reglubundnu áætlunar flugi milli Vestmannaeyja og Reykjavík eftir þann tíma. Flugfélag Íslands mun hins vegar setja inn auka flug vegna Þjóðhátíðar 2010 og fljúga til þriðjudagskvölds 3.ágúst til að þjónusta þjóðhátíðargesti.

Samkvæmt samkomulaginu verður flogið tvisvar á dag milli Vestmannaeyja og Reykjavík frá og með 1.janúar 2010.

Undanfarin ár, eftir að Flugfélag Íslands hóf aftur flug milli Vestmannaeyja og Reykjavík, hefur orðið góð aukning í fjölda farþega og þá sérstaklega í meiri ferðatíðni Vestmannaeyinga og aukningu ferðamanna.


22.12.2009 Flugfélag Íslands styrkir Neistann, styrktarfélag hjartveikra barna. Undanfarin ár hefur Flugfélag Íslands styrkt góð málefni í lok árs og meðal þeirra sem notið hafa þessa stuðnings eru Krabbameinsfélagið, Barnaspítali Hringsins, SKB o.fl. 

Í ár hefur Flugfélagið ákveðið að styðja við bakið á Neistanum, styrktarfélagi hjartveikra barna,  með því að gefa þeim inneign að andvirði kr. 500.000. 

Með þessu framlagi er foreldrum hjartveikra barna og forsvarsmönnum Neistans gert auðveldara að ferðast innanlands sem kemur þeim vonandi til góða.
22.12.2009 Hagstætt að fljúga innanlands

Lára Ómarsdóttir fréttamaður RÚV greindi frá því í kvöldfréttum mánudaginn 21.desember 2009 hvernig hagstæðast væri að komast frá Reykjavík til áfangastaða Flugfélags Íslands; Ísafjarðar, Akureyrar og Egilsstaða.

Verðsamanburður milli flugs, hópferðabifreiða, smábíls og jeppa sínir hversu hagstætt flug innanlands sé með Flugfélagi Íslands.

Sjá nánar um þessa samantekt í frétt RÚV.



17.12.2009 Flugfélags Íslands Deildarbikarinn 2009 Milli jóla og nýárs mun fara fram keppni um Deildarbikar HSÍ en sú keppni hefur verið haldin á þessum tíma undanfarin 2 ár. Í ár ber keppnin heitið Flugfélags Íslands Deildarbikarinn.
28.10.2009 Uppfærsla á bókunarvef

6.10.2009 Flug milli Vestmannaeyja og Akureyrar

Flugfélag Íslands, Markaðsstofa Ferðamála á Norðurlandi og Vestmannaeyjabær hafa í samstarfi komið á beinu áætlunarflugi milli Akureyrar og Vestmannaeyja.

Þetta er gert eingöngu í eitt skipti til að efla frekar samskipti íbúa norðurlands og Vestmannaeyja.
Flogið verður föstudagurinn 12 Feb. 2010 og tilbaka sunnudaginn 14 Feb 2010. Farþegar milli þessara landshluta hafa alltaf og munu áfram fljúga milli þessara áfangastaða með millilendingu á Reykjavíkurflugvelli, nema í þetta eina skiptið.

Þetta er þegar komið í sölu á netinu á heimasíðu Flugfélags Íslands -flugfelag.is.


Kveðja,
Starfsfólk Flugfélags Íslands


-->
10.7.2009 Flugfélag Íslands og Park Project, - halda til Grænlands, 11. – 17. júlí Þann 11. Júlí nk. nun Flugfélag Íslands ásamt bluesbandi Pálma Gunnarssonar halda til Grænlands og heimsækja þrjá af fimm á áfangastöðum Flugfélagsins á Grænlandi.  Ástæða ferðalagins er kynning á Ilulissat, nýjum áfangastað Flugfélags Íslands á norðurströnd Grænlands.   Að auki mun Ísland verða kynnt sem áfangastaður fyrir Grænlendinga, bæði eitt og sér eða sem áfangastaður á leið þeirra til Evrópu eða Ameríku.

Þeir áfangastaðir sem heimsóttir verða í ferðinni eru Ilulissat, höfuðborgin Nuuk á vesturströnd Grænlands og Narsarsuaq á suður-Grænlandi, en það eru áfangastaðir Flugfélags Íslands ásamt Kulusuk og Constable Point á austurströnd Grænlands sem flogið er til allt árið.  Park Project, bluesband Pálma Gunnarssonar mun halda tónleika á öllum þessum stöðum.  Í bluesbandinu eru auk Pálma tónlistarmennirnir Birgir Baldursson, Kjartan Valdimarsson, Kristján Edelstein og söngkonan Hrund Ósk Árnadóttir. 

Bókanir til Ilulissat fyrir sumarið erum mjög góðar og nánast er fullbókað í öll flug.  Flogið er tvisvar í viku og ferðatímabilið er til 29. Ágúst.  Til Nuuk er flogið fjórum sinnum í viku sem eru aukning um eitt flug í viku milli ára  sem hefur mælst vel fyrir því til Nuuk er vel bókað fram í haust.  Til Narsarsuaq er flogið tvisvar í viku og í ár hóf Flugfélag Íslands flug til Narsarsuaq fyrr en venjulega eða í maí.  Flogið verður til Narsarsuaq til 18. september. Mikil aukning hefur verið í fraktflutningum  til Grænlands frá Íslandi og þá aðallega í flutningi á ferskri vöru s.s. grænmeti og ávöxtum. 

Allar ferðir til og frá Grænlandi  er hægt að bóka á vefsíðunni www.flugfelag.is  
frábærir veiðipakkar, bæði stangveiði og hreindýraveiði.  Einnig eru í boði hótelpakkar til áfangastaðanna sem og gönguferðir ofl. ævintýraferðir.
2.7.2009 Helmingi fleiri farþegar bókaðir á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum Um helmingi fleiri farþegar eru nú bókaðir í flug til Vestmannaeyja um Þjóðhátíð en á sama tíma í fyrra.
20.5.2009 Komur/brottfarir aðgengilegar í Vodafone live! Viðskiptavinir Flugfélags Íslands geta nú fengið upplýsingar um komur og brottfarir Flugfélag Íslands í Vodafone live!

Þetta bætir aðgengi viðskiptavina FÍ enn betur en sem fyrr er hægt að nálgast komur og brottfarir á heimasíðu flugfelag.is, textavarpi, RÚV, mbl.is.
-->
15.5.2009 90% Íslendinga ætla að ferðast innanlands í sumar

Samkvæmt könnun Ferðamálastofu um ferðaáform Íslendinga innanlands má búast við líflegu ferðasumri í ár.  Í könnuninni, sem framkvæmd var í apríl síðastliðnum af MMR, kemur fram að níu Íslendingar af hverjum tíu ætla að ferðast innanlands í sumar sem er nokkuð hærra hlutfall en fyrri kannanir Ferðamálastofu hafa sýnt.

Sjá nánar á vef Ferðamálastofu


30.4.2009 Tvö dekk sprungu við lendingu Tvö dekk sprungu á Fokker 50 flugvél Flugfélags Íslands við lendingu á Reykjavíkurflugvelli.
10.3.2009 Kletturinn - til hamingju Einar Halldórsson Einar á Egilsstöðum hlaut Klettinn




17.2.2009 Eyrarrósin afhent á Bessastöðum  

Landnámssetur Íslands hlaut Eyrarrósina 2009

Eyrarrósin 2009 kom í hlut Landnámssetur Íslands í Borgarnesi og veittu aðstandur þess, þau Kjartan Ragnarsson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttur, viðkenningunni móttöku við hátíðlega athöfn á Bessastöðum


15.1.2009 Flugvél Flugfélags Íslands fær á sig vindhnút í aðflugi á Egilsstöðum Flugvél Flugfélags Íslands á leið frá Reykjavík til Egilsstaða fékk óvænt á sig töluverðan vindhnút í aðfluginu inn til lendingar.
6.1.2009 420.000 farþegar hjá Flugfélagi Íslands árið 2008, annað stærsta ár félagsins frá upphafi

Fjöldi farþega Flugfélags Íslands dróst saman um 2% á árinu 2008 miðað við árið 2007. Heildarfjöldi farþega í áætlunarflugi var um 420 þúsund þar af voru um 22 þúsund farþegar í millilandaflugi til Færeyja og Grænlands.



23.12.2008 Um 7000 farþegar á flugi um jól og áramót Töluvert fleiri farþegar eiga bókað flug um hátíðirnar en á síðasta ári, fjölgunin nemur 8%
28.11.2008 Farþegum fjölgar milli Færeyja og Íslands Samstarfsverkefni Flugfélags Íslands og Atlantic Airways eykur verslun.
26.11.2008 Góð aðsókn að Grænlandskynningu Fjöldi manns lagði leið sína í Norræna húsið
20.11.2008 Kynning á suður Grænlandi 22. nóvember Töfrar suður Grænlands í Norræna húsinu 21. og 22. nóvember.
20.11.2008 Nýr vefur í loftið Nýr vefur Flugfélags Íslands fór í loftið í gær. 
18.11.2008 Eyrarrósin Viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarstarf
Brottfarardagur
Veldu dagsetningu
Heimkoma
Veldu dagsetningu
Lokafargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og eru ekki bókanleg
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára