English  Dansk
Forsíða
20.11.2008 10:09:00 Kynning á suður Grænlandi 22. nóvember

Flugfélag Íslands, Destination South Greenland(www.southgreenland.gl) og Norræna húsið standa sameiginlega að sýningu um suður Grænland, dagana 21. og 22. Nóvember nk. Sýningin verður haldin í Norræna húsinu og mun Kristján Möller, samgönguráðherra opna sýninguna formlega föstudaginn 21. nóvember kl. 17.30.

Sýningin mun einkennast af ferða- og menningarmálum er tengjast suður Grænlandi og ferðafrömuðir frá því svæði munu heimsækja Ísland af þessu tilefni. Grænlenskur trommudansari kemur sérstaklega til landsins og mun hann skemmta gestum á sýningunni og einnig verður boðið uppá grænlenskan mat.

Meðal þess sem verður um að vera þessa daga er kynning á ferðamöguleikum svæðisins s.s. veiðiferðum og öðrum ævintýraferðum. Pálmi Gunnarsson, söngvari og veiðiáhugamaður, og Emil Guðmundsson munu segja frá svæðinu og hvaða ferðir verða þar í boði næsta sumar á vegum Flugfélags Íslands. Edda Lyberth sem býr í suður Grænlandi mun segja frá sögu suður Grænlands ásamt því að fjalla um grænlenska matargerð, en Edda hefur mikla reynslu og þekkingu á ferðamálum suður Grænlands enda hefur hún búið þar og haft umsjón með minjum og ferðamálum í Bröttuhlíð um nokkurra ára skeið.

Flugfélag Íslands flýgur til Narsarsuq á suður Grænlandi yfir sumartímann og áætlun 2009 gerir ráð fyrir að flogið verði tvisvar í viku frá Reykjavíkurflugvelli.  Í heildina mun Flugfélag Íslands því fljúga allt að tuttugu sinnum í viku til Grænlands næsta sumar til Kulusuk, Constable Point, Nuuk og Illuissat sem er nýr áfangastaður Flugfélagsins á Grænlandi.

Undanfarin ár hefur áhugi Íslendinga á veiðiferðum til Grænlands farið vaxandi og þá sérstaklega á stangveiðiferðum og hreindýraferðum. Göngufólk og aðrir útivistarhópar fara einnig í vaxandi mæli til suður Grænlands. Flugfélag Íslands mun bjóða ævintýraferðir til suður Grænlands næsta sumar.

Sýningin opnar kl. 17.00 föstudaginn 21. nóvember og verður opinn til kl. 19.00.

Dagskrá laugardagsins 22. nóvember verður :

Húsið opnar kl. 12:00

13:00 Edda Lyberth ferðafrömuður í Bröttuhlíð segir frá sögu suður Grænlands

13:30 Fyrirlestur um torfhús og byggingu þeirra

14:00 Trommudansari leikur listir sínar

14:30 Edda Lyberth kynnir grænlenska matargerð

15:00 Pálmi Gunnarsson segir frá veiði í Suður Grænlandi

15:30 Emil Guðmundsson kynnir ferðir fyrir eldri borgara um fornar byggðir Íslendinga í Eystribyggð á suður Grænlandi og Friðrik Brekkan formaður Kalak sýnir myndina “Í fótspor víkinganna til Grænlands og Vesturheims”

16:00 Trommudansari tekur sporið á ný

Upplýsingar:

Allar nánari upplýsingar veitir Gróa Ásgeirsdóttir hjá Flugfélagi Íslands í síma 8965064.


<<Til baka
Brottfarardagur
Veldu dagsetningu
Heimkoma
Veldu dagsetningu
Lokafargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og eru ekki bókanleg
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára
Inspired by Iceland