Flugfélag Íslands, Destination South Greenland og Norræna húsið stóðu sameiginlega að sýningu um Suður Grænland, dagana 21. og 22. nóvember sl. Sýningin var haldin í Norræna húsinu og var aðsóknin mjög góð. Fjöldi fólks kom og hlustuðu á fyrirlestra um töfra suður-Grænlands sem og fengu að smakka grænlenskan mat. Það sem í boðið var uppá var meðal annars þurrkað sauðnaut, hreindýr, þurrkað hvalkjöt og silungur.
Sýningin einkenndist af ferða- og menningarmálum er tengjast suður Grænlandi og ferðafrömuðir frá svæðinu heimsóttu Ísland af þessu tilefni. Grænlenskur trommudansari kom sérstaklega til landsins og skemmti hann gestum á sýningunni við góðar undirtektir.
Á dagskránni var meðal annars kynning á ferðamöguleikum suður Grænlands s.s. veiðiferðum og öðrum ævintýraferðum. Pálmi Gunnarsson og Emil Guðmundsson munu sögðu frá og kynntu hvaða ferðir verða þar í boði næsta sumar á vegum Flugfélags Íslands.
Flugfélag Íslands flýgur til Narsarsuq á suður Grænlandi yfir sumartímann og áætlun 2009 gerir ráð fyrir að flogið verði tvisvar í viku frá Reykjavíkurflugvelli. Að auki mun Flugfélag Íslands fljúga fjórum sinnum í viku til Nuuk og tvisvar til Illulissat sem er nýr áfangastaður Flugfélagsins á Grænlandi.
Undanfarin ár hefur áhugi Íslendinga á veiðiferðum til Grænlands farið vaxandi og þá sérstaklega stangveiðiferðum og hreindýrferðum. Göngufólk og aðrir útivistarhópar fara einnig í vaxandi mæli til Grænlands. Flugfélag Íslands mun bjóða ævintýraferðir til Nuuk og suður-Grænlands næsta sumar.