Flugfarþegum á milli Færeyja og Íslands á vegum Flugfélags Íslands og færeyska flugfélagsins Atlantic Airways fjölgaði um 27% í september miðað við sama mánuð í fyrra og aukning sölu í fríhafnarverslun Flugfélags Íslands á Reykjavíkurflugvelli var 44%. Í október mánuði var aukning flugfarþega 91% og aukning sölu fríhafnar var 97%. Það stefnir í að aukning í nóvember mánuði verði einnig mikil. Mest aukningin farþega eru færeyingar í verslunar- og skemmtiferð til Íslands. Einnig er aukning meðal íslenskra hópa á leiðinni til Færeyja.
Starfsfólk Flugfélags Íslands á Reykjavíkurflugvelli hefur fundið fyrir mikilli aukningu á endurgreiðslu virðisaukaskatts, vegna kaupa á vörum á Íslandi, en til að mæta þeirri aukningu er búið að bæta aðstöðu í flugstöðinni fyrir farþega til útfyllingar nauðsynlegra pappíra.
Flogið er alla föstudaga og mánudaga á 90 sæta þotu á vegum færeyska flugfélagsins Atlantic Airways.