Fjöldi farþega Flugfélags Íslands dróst saman um 2% á árinu 2008 miðað við árið 2007. Heildarfjöldi farþega í áætlunarflugi var um 420 þúsund þar af voru um 22 þúsund farþegar í millilandaflugi til Færeyja og Grænlands.
Flogið var til 4 áfangastaða innanlands frá Reykjavík, til Akureyrar, Egilsstaða, Ísafjarðar og til Vestmannaeyja. Millilandaáfangastaðir félagsins eru á Grænlandi, Kulusuk, Constable Pynt, Narsarsuaq og Nuuk, jafnframt var líkt og áður boðið uppá flug til Færeyja.
Hlutfallslega mesta aukning farþega var á leiðinni milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja eða um 26% og flugu um 29 þúsund farþegar á þeirri flugleið með félaginu, á leiðinni til Ísafjarðar og Akureyrar stóð farþegafjöldinn nánast í stað á milli ára var um 47 þúsund á Ísafjörð og tæplega 200 þúsund á Akureyri. Til Egilsstaða var nokkur fækkun farþega eða um 15% og var það nokkuð fyrirséð vegna loka á virkjunarframkvæmdum, farþegafjöldi á þeirri leið var um 114 þúsund á síðasta ári.
Flugfélag Íslands mun á árinu 2009 halda áfram að stækka leiðakerfi sitt og býður í fyrsta skiptið uppá áætlunarflug til Ilulissat á vesturströnd Grænlands og mun með því halda úti áætlunarflugi á 5 áfangastaði á Grænlandi næsta sumar og hafa þeir aldrei verið fleiri.