Flugvél Flugfélags Íslands á leið frá Reykjavík til Egilsstaða fékk óvænt á sig töluverðan vindhnút í aðfluginu inn til lendingar. Flugvélin sem er af gerðinni Fokker 50 fór frá Reykjavík kl. 11:00 í dag með 11 farþega um borð og lenti á Egilsstöðum um kl. 12:05. Flugstjóri vélarinnar fór yfir atvikið með farþegum eftir lendingu og útskýrði hvað hafði gerst. Tveir farþeganna ákváðu að leita til heilsugæslustöðvarinnar á Egilsstöðum til frekari skoðunar.