Á 10 ára afmæli Markaðsstofu Austurlands var Kletturinn veittur í fimmta sinn. Kletturinn er viðurkenning veitt þeim einstaklingum sem um árabil hafa staðið í framlínu ferðaþjónustu á Austurlandi. Einstaklingum sem með ósérhlífni og eljusemi hafa stuðlað að framgangi og vexti atvinnugreinarinnar. Þeir eru bjargið sem ferðaþjónustan byggir á og eru öðrum fyrirmynd í að klífa örðuga hjalla til að ná handfestu á framtíðinni, eins og segir á viðurkenningarskjalinu. Klettinn hlaut þessu sinni Einar Halldórsson, starfsmaður Flugfélags Íslands. Einar hóf störf hjá Flugfélaginu sem sumarstarfsmaður árið 1974 en er hér enn, 35 árum síðar. Einar er í raun “maðurinn á bak við tjöldin”. Hann er hugmyndasmiður, hgumyndaríkur með eindæmum og er óþreytandi í því að finna leiðir til að auka ferðamannastraum til Austurlands. Hann hefur átt ófáar stundir inni á skrifstofu Markaðsstofu Austurlands, í hugarflugi um það hvað má gera í fjórðungnum til að fjölga ferðamönnum. Hugmyndir hans hafa meðal annarra verið ýmsar pakkaferðir s.s Kárahnjúkaferðir, uppskeruhátíð, sem síðar fékk nafnið “Nú ber vel í veiði” og að ógleymdu því að markaðssetja myrkrið undir kjörorðinu ”Dagar myrkurs”, sem fara stækkandi ár frá ári og vekja sífellt meiri eftirtekt á landsvísu. Það má segja að það hafi verið fyrsta markvissa markaðssetning á vetrinum á Austurlandi. Einar á í fórum sínum fleiri snargeggjaðar hugmyndir, eins og hann segir sjálfur, sem hafa ekki enn komið til framkvæmda sem við vonumst til að njóta góðs af. Einar hefur ætíð verið sterkur talsmaður Austurlands í sínu fyrirtæki og án hans hefðu mörg ferðaþjónustufyrirtæki haft minna að gera.Hann, og starfsfólk hans, hefur ávallt lagt sig fram við að þjónusta, erlenda sem innlenda, með stuttum fyrirvara og á öllum tímum sólarhrings.Hann er talsmaður samvinnu og frábær fyrirmynd fyrir okkur hin.Einar Halldórsson er vel að Klettinum kominn. Með þakklæti fyrir allt hans óeigingjarna framlag.Fyrir hönd Markaðsstofu AusturlandsÁsta ÞorleifsdóttirFramkvæmdastjóri Markaðsstofu AusturlandsEinar Halldórsson er til vinstri á myndinni