English  Dansk
Forsíða
2.7.2009 11:32:00 Helmingi fleiri farþegar bókaðir á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum

Um helmingi fleiri farþegar eru nú bókaðir í flug til Vestmannaeyja um Þjóðhátíð en á sama tíma í fyrra. Í heildina eru nú um 1700 farþegar bókaðir í flug til og frá Eyjum dagana 30. júlí til 4. ágúst, þ.e. frá fimmtudegi til þriðjudags þessa helgi. Sem fyrr er mánudagurinn eftir Þjóðhátíð vinsælastur í flugi og hafa nú þegar verið settar upp 17 ferðir í flug frá Vestmannaeyjum þann dag.
 

Almennt má segja að landinn ætli að skemmta sér innanlands í sumar, mikið hefur verið bókað í flug í kringum hinar ýmsu hátíðir sem haldnar eru um allt land. Gildir þá einu hvort um er að ræða menningarviðburði af ýmsu tagi, íþróttamót eða annarskonar skemmtun.


Flugfélag Íslands óskar landsmönnum öllum góðs ferðasumars.


<<Til baka
Brottfarardagur
Veldu dagsetningu
Heimkoma
Veldu dagsetningu
Lokafargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og eru ekki bókanleg
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára
Inspired by Iceland