English  Dansk
Forsíða
10.7.2009 11:01:00 Flugfélag Íslands og Park Project, - halda til Grænlands, 11. – 17. júlí
Þann 11. Júlí nk. nun Flugfélag Íslands ásamt bluesbandi Pálma Gunnarssonar halda til Grænlands og heimsækja þrjá af fimm á áfangastöðum Flugfélagsins á Grænlandi.  Ástæða ferðalagins er kynning á Ilulissat, nýjum áfangastað Flugfélags Íslands á norðurströnd Grænlands.   Að auki mun Ísland verða kynnt sem áfangastaður fyrir Grænlendinga, bæði eitt og sér eða sem áfangastaður á leið þeirra til Evrópu eða Ameríku.

Þeir áfangastaðir sem heimsóttir verða í ferðinni eru Ilulissat, höfuðborgin Nuuk á vesturströnd Grænlands og Narsarsuaq á suður-Grænlandi, en það eru áfangastaðir Flugfélags Íslands ásamt Kulusuk og Constable Point á austurströnd Grænlands sem flogið er til allt árið.  Park Project, bluesband Pálma Gunnarssonar mun halda tónleika á öllum þessum stöðum.  Í bluesbandinu eru auk Pálma tónlistarmennirnir Birgir Baldursson, Kjartan Valdimarsson, Kristján Edelstein og söngkonan Hrund Ósk Árnadóttir. 

Bókanir til Ilulissat fyrir sumarið erum mjög góðar og nánast er fullbókað í öll flug.  Flogið er tvisvar í viku og ferðatímabilið er til 29. Ágúst.  Til Nuuk er flogið fjórum sinnum í viku sem eru aukning um eitt flug í viku milli ára  sem hefur mælst vel fyrir því til Nuuk er vel bókað fram í haust.  Til Narsarsuaq er flogið tvisvar í viku og í ár hóf Flugfélag Íslands flug til Narsarsuaq fyrr en venjulega eða í maí.  Flogið verður til Narsarsuaq til 18. september. Mikil aukning hefur verið í fraktflutningum  til Grænlands frá Íslandi og þá aðallega í flutningi á ferskri vöru s.s. grænmeti og ávöxtum. 

Allar ferðir til og frá Grænlandi  er hægt að bóka á vefsíðunni www.flugfelag.is  
frábærir veiðipakkar, bæði stangveiði og hreindýraveiði.  Einnig eru í boði hótelpakkar til áfangastaðanna sem og gönguferðir ofl. ævintýraferðir.

<<Til baka
Brottfarardagur
Veldu dagsetningu
Heimkoma
Veldu dagsetningu
Lokafargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og eru ekki bókanleg
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára
Inspired by Iceland