28.10.2009 22:43:00
Uppfærsla á bókunarvef
Kæri viðskiptavinur,
Í dag, fimmtudaginn 29.nóvember, tók Flugfélag Íslands í notkun nýjan bókunarvef.
Þetta er gert til að bæta enn frekar við þjónustu við okkar viðskiptamenn. Markmið nýja bókunarvefsins er að gera bókunina enn einfaldari.
Við síðustu þjónustukönnun sem Flugfélags Íslands gerði sýndi að um 95% notenda að bókunarvefnum voru mjög ánægðir með einfaldleikann og bókunarferlið. Er það ósk okkar hjá Flugfélagi Íslands að það verði áfram svoleiðis.
Helstu endurbætur á nýjum bókunarvef:
Bókunarskrefum verður fækkað um eitt skref - verða fjögur.
Hægt er að fá samanburð á fargjöldum með því að smella á heiti fargjalds.
Hægt er að fá nánari upplýsingar um flugið sjálf með því að smella á flugnúmerið
Hægt að sjá fleiri flug í boði. Birtir nú flug einn dag fyrir og einn dag eftir valdar dagsetningar, það er virkjað með því að smella á "Sjá fleiri flug í boði"
Hægt að prenta út kvittun á lokaskrefi
Verður enn öruggari CVC númer eru skilyrt. CVC er öryggisnúmer sem er á öllum kreditkortum, og er auka lag öryggis sem á að tryggja að sá sem er að nota kortið sé með það á sér. Flugfélag Íslands tryggir með þessu að ekki verður hægt að bóka með stolin kortanúmer.
Hér er mynd sem sýnir hvar númerin eru á kortunum, á American Express er þetta númer fjórir stafir.

<<Til baka