Flugfélag Íslands og Vegagerðin hafa gert með sér samkomulag um framlengingu á flugi milli Vestmannaeyja og Reykjavík. Gildir samningurinn til 31.júlí 2010. Samkvæmt óbreyttu mun Flugfélag Íslands hætta reglubundnu áætlunar flugi milli Vestmannaeyja og Reykjavík eftir þann tíma. Flugfélag Íslands mun hins vegar setja inn auka flug vegna Þjóðhátíðar 2010 og fljúga til þriðjudagskvölds 3.ágúst til að þjónusta þjóðhátíðargesti.
Samkvæmt samkomulaginu verður flogið tvisvar á dag milli Vestmannaeyja og Reykjavík frá og með 1.janúar 2010.
Undanfarin ár, eftir að Flugfélag Íslands hóf aftur flug milli Vestmannaeyja og Reykjavík, hefur orðið góð aukning í fjölda farþega og þá sérstaklega í meiri ferðatíðni Vestmannaeyinga og aukningu ferðamanna.