English  Dansk
Forsíða
21.1.2010 13:59:00 Flugvél lendir í mikilli ókyrrð
Flugvél Flugfélags Íslands á leið frá Ísafirði, eftir að hafa hætt við lendingu þar, lenti í mikilli ókyrrð þegar flogið var uppúr Skutulsfirðinum.

Vélin fór af stað frá Reykjavík um kl. 10:15 með 23 farþega um borð ásamt þriggja manna áhöfn. Í aðflugi inn á Ísafjarðarflugvöll var ákveðið að hætta við lendingu vegna nokkurrar ókyrrðar, þegar vélin hinsvegar flýgur frá Ísafjarðarflugvelli lendir hún í mikilli ókyrrð.

Vélinni var síðan flogið til Reykjavíkur þar sem lent var um kl. 11:50.

Við komuna í Reykjavík fór áhöfn vélarinnar ítarlega yfir flugið með farþegum vélarinnar og útskýrði hvað gerst hafði, einnig var farþegum boðin áfallahjálp.

<<Til baka
Brottfarardagur
Veldu dagsetningu
Heimkoma
Veldu dagsetningu
Lokafargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og eru ekki bókanleg
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára
Inspired by Iceland