English  Dansk
Forsíða
9.2.2010 15:28:00 Eyrarrósin afhent á Bessastöðum mánudaginn 15.02.2010

Eyrarrósin

er veitt á ári hverju einu menningarverkefni á landsbyggðinni. Markmið Eyrarrósarinnar er að efla fagmennsku og færni við skipulagningu menningarlífs og listviðburða á landsbyggðinni, auka kynningarmöguleika einstakra sveitarfélaga og landshluta og skapa sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu.


Þrjú verkefni hafa verið tilnefnd úr hópi umsækjenda: tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði eystra, Eiríksstaðir í Haukadal og Skjaldborg - heimildarmyndahátíð á Patreksfirði.


Það verður tilkynnt við athöfnina hvert framangreindra verkefna hlýtur Eyrarrósina í ár; fjárstyrk að upphæð 1,5 milljón kr. og verðlaunagrip eftir Steinunni Þórarinsdóttur til eignar. Hin verkefnin sem tilnefnd eru hljóta 200 þúsund króna framlag. Öll verkefnin hljóta að auki flugferðir frá Flugfélagi Íslands. Verðlaunin veitir Dorrit Moussaieff forsetafrú, sem jafnframt er verndari Eyrarrósarinnar.

Í fyrra hlaut Landnámssetrið í Borgarnesi Eyrarrósina en aðrir handhafar hennar eru Rokkhátíð alþýðunnar - Aldrei fór ég suður, Strandagaldur á Hólmavík, LungA, listahátíð ungs fólks á Austurlandi og Þjóðlagahátíðin á Siglufirði.


Eyrarrósin er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Byggðastofnunar og Flugfélags Íslands.


<<Til baka
Brottfarardagur
Veldu dagsetningu
Heimkoma
Veldu dagsetningu
Lokafargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og eru ekki bókanleg
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára
Inspired by Iceland