English  Dansk
Forsíða
16.2.2010 21:27:00 Fjöldi ferðamanna árið 2009

Um 30.000 manns komu með öðrum leiðum þ.e. með Norrænu, skemmtiferðaskipum og um aðra flugvelli. Auk þessa koma tæplega 72.000 farþegar með skemmtiferðaskipum sem fjölgaði því um 16% milli ára.

Heildarfjöldi ferðamanna er því 566.000, sem er fjölgun um 0,7% milli ára. Við megum því mjög vel við una hvað þennan fjölda varðar og veikt gengi hjálpar eflaust til varðandi heimsóknir erlendra ferðamanna. Bretar voru fjölmennastir til landsins um Leifsstöð eða 61.619 talsins, þá Þjóðverjar 51.879 svo koma Bandaríkjamenn og Danir. Þar næst koma Norðmenn og svo Svíar.

Þess má geta að 14.340 Pólverjar eru í 9. sæti, sem gera má ráð fyrir að sé að talsverðu leyti erlent vinnuafl á leið úr landi eða heim í frí. Norðurlandabúar sem heild eru fjölmennastir.

Þess má geta að Þjóðverjar eru fjölmennastir á sumrin og því flestir alla mánuði júní-september.

<<Til baka
Brottfarardagur
Veldu dagsetningu
Heimkoma
Veldu dagsetningu
Lokafargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og eru ekki bókanleg
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára
Inspired by Iceland