Akureyri
Skipuleggðu heimsókn til heimsborgarinnar Akureyrar fyrir hópinn þinn!
Hvort sem saumaklúbburinn vill fara í verslunarferð- eða strákarnir í óvissuferð, - eða allir saman í eina ferð, þá er allt til alls á Akureyri- eða "litlu Dublin" eins og gárungar segja sumir. Gerum tilboð í flugverð fyrir hópa (10+)Pakkaferðir Flugfélag Íslands býður einnig upp á pakka sem innihalda flug og gistingu. Allar upplýsingar er hægt að fá hjá hópadeild Flugfélags Íslands í síma 570-3075 eða með því að senda póst á hopadeild@flugfelag.isSamstarfsaðilar Flugfélagsins
Útivistarhópar geta heimsótt stórkostlegar náttúruperlur, menningarvitar geta séð list-og leiksýningar á heimsmælikvarða, og íþróttaáhugamenn geta valið úr flestum þeim íþróttagreinum sem stundaðar eru hérlendis. Fyrir þá sem stunda vetraríþróttir ss. skíði og skauta er Akureyri staðurinn!
Dekur við líf og sál er nauðsynlegt að stunda í stórum hópum eða einn og sér. Nudd- og snyrtistofur bjóða uppá dásamlegar slökunar- og fegrunarmeðferðir. Sundlaug Akureyrar er allsherjarmiðstöð mannlífsins og þar má fá sér sundsprett og rabba um daginn og veginn við þjóðkunna Norðlendinga í heitu pottunum. Hópferð í hin unaðslegu jarðböð við Mývatn þar sem njóta má náttúrunnar á meðan slakað er á svíkur engan.
Lokaákvörðun dagsins þegar búið er að njóta bæjarins og næsta nágrennis, hlýtur að vera hvar skal njóta dýrindis kvöldverðar sem framreiddur er af norðlenskum listakokkum sem kunna að matreiða allt sem nöfnum tjáir að nefna.Að því loknu er tilvalið að kanna næturlíf bæjarins, kaffihús, bari og skemmtistaði og fá sér svo eina pylsu með rauðkáli á Ráðhústorginu áður en lagst er til hvílu.