English  Dansk
Forsíða

Egilsstaðir

 

Austurland

Austurland gefur að bjóða stórbrotið landslag og lífríki, blómlegt mannlíf og þjónustulundaða heimamenn. Sjón er sögu ríkari, því er tilvalið að bóka hópferð til að skoða fjórðunginn með eigin augum.


Gerum tilboð í flugverð fyrir hópa (10+)

Pakkaferðir

Flugfélag Íslands býður einnig upp á pakka sem innihalda flug og gistingu. Allar upplýsingar er hægt að fá hjá hópadeild Flugfélags Íslands í síma 570-3075 eða með því að senda póst á hopadeild@flugfelag.is

Samstarfsaðilar Flugfélagsins


Gisting á Egilsstöðum Afþreying
Hótel Hérað www.east.is

 

Merkar fornleifar

Óvæntir hlutir af óvenjulegum toga gætu líka gerst, og því ættu allir að skoða landið sitt vandlega. Ekki fyrir margt löngu fundu hjón á göngu eitthvað oddhvasst sem stóð upp úr jörðinni og líktist sverði. Þegar betur var að gáð, lágu bein á víð og dreif. Einn merkasti fundur íslenskrar fornleifa var hér á ferðinni, eða Þórisárkumlið svonefnda, en haugbúi þess og hestur eru nú til sýnis á Minjasafni Austurlands.

Menningarlífið

Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs í Sláturhúsinu á Egilsstöðum mun standa fyrir fjölbreyttri dagskrá og menningarviðburðir eru margvíslegir í boði á Egilsstöðum. Þekkingarsetur Austurlands fræðir gesti og gangandi um allt undir sólinni.

 

Sigling á Lagarfjóti

Ýmsar aðrar verur úr forneskjunni eru til alls vísar, svo sem hinn dulúðugi Lagafljótsormur. Hver veit nema hann sýni sig ef hópurinn drífur sig í siglingu niður í Atlavík (Hallormsstað)?. Ef ekkert sést til hans má fá sér pönnukökur í gamla Húsmæðraskólanum og halda svo tilbaka.


 

Einstök útivistar perla

Möguleikar til útivistar, göngu- grasa- og ýmiskonar veiðiferða eru engu líkar á Austfjörðum, og í veðurfarinu sem stundum er líkt við meginlandsloftslag Evrópu, er svo sannarlega hægt að njóta lífsins.


 

Lúxus fyrir líkama og sál

Hótel Hérað býður upp á lúxusgistingu og fyrir þá sem vilja rækta líkamann er góð sundlaug á Egilsstöðum, jógamiðstöð og líkamsræktarstöð! Sérstaklega lagnir handverksmenn geta svo boðið uppá gripi til minningar um túrinn, og á matsölustöðum og kaffihúsum má bragða á Austfirskum eðalréttum við allra hæfi.

Brottfarardagur
Veldu dagsetningu
Heimkoma
Veldu dagsetningu
Lokafargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og eru ekki bókanleg
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára
Inspired by Iceland