English  Dansk
Forsíða

Reykjavík

 

 

Reykjavík

Hver vegna að fara langt yfir skammt til að skemmta sér- því að fara til útlanda, þegar heimsborgin Reykjavík býður upp á nánast allt sem erlendar stórborgir státa af.

Hvers vegna ekki að pakka niður í tösku og fara í hópferð til höfuðstaðarins og eyða helginni í bænum og skoða hvaða nýjungar eru í boði þar.

Menning og listir

Menningar- og listalíf borgarinnar er svo fjölbreytt að fáar borgir státa af öðru eins.
Verslanir eru á heimsklassa og fjölbreytnin er geysileg í flestum vöruflokkum. Fyrir þá sem vilja tolla í tískunni státar Laugavegurinn af verslunum á heimsklassa, en fyrir þá sem vilja vera innandyra, bjóða stærri verslunarmiðstöðvarnar Smáralind og Kringlan upp á þægilegt umhverfi.

Umlukin fallegri náttúru

Náttúran er skammt undan, og eru fjölmörg skemmtileg útivistarsvæði í og við Reykjavík sem gaman er að njóta og eiga svo ævintýralegt kvöld í Reykjavík að lokinni frísklegri útivist.

 

Líkamsrækt við allra hæfi

Fyrir þá sem vilja stunda líkams- og heilsurækt alla daga vikunnar, er af nógu að taka, og býður Reykjavík yfirleitt upp á allar þær tegundir heilsuræktar sem hugurinn girnist.

Dagsferðir

Skipulagðar dagsferðir með farastjórum og leiðsögumönnum eru af margvíslegum toga og hægt að fá uppýsingar hjá hópadeild Flugfélagsins.

Einstakt næturlíf

Borgin hefur svo margar hliðar að engin leið er að kanna þær allar í einni ferð. Næturlífið er orðið heimfrægt og hægt að dansa frá sér allt vit á skemmtistöðum borgarinnar.

Komdu með hópinn þinn til Reykjavíkur og kannaðu málið.

Flugfélag Íslands býður hóptilboð allan ársins hring, pakkaferðir með flugi og fyrsta flokks gistingu ásamt morgunverði á frábæru verði til Reykjavíkur. Gerum einnig tilboð í flug eingöngu.

Hópferð gefur kostur á margs konar upplifun á hverjum stað  t.d. fara í spennandi óvissuferð og njóta útivistar og líkamlegrara endurnæringar í fögru umhverfi.

Gerum tilboð í flugverð fyrir hópa (10+)

Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá þjónustufulltrúa hópadeildar í síma 570-3075 eða með því að senda póst á netfangið hopadeild@flugfelag.is

Reykjavík - Pakkaferðir

 
Flugfélag Íslands býður einnig upp á pakka sem innihalda flug og gistingu. Allar upplýsingar er hægt að fá hjá hópadeild Flugfélags Íslands í síma 570-3075 eða með því að senda póst á hopadeild@flugfelag.is


Samstarfsaðilar Flugfélagsins


Gisting í ReykjavíkAfþreying
Hótel Hilton Nordica ReykjavíkÓvissuferðir

Hótel Loftleiðir


Hótel Björk
Hótel Frón

Hótel Arnarhvoll

Hótel Plaza
Hótel Þingholt

Brottfarardagur
Veldu dagsetningu
Heimkoma
Veldu dagsetningu
Lokafargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og eru ekki bókanleg
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára
Inspired by Iceland