Burt úr bænum - með hópinn þinn !
Nú er tækifæri til að koma hópnum þínum skemmtilega á óvart, taka flugið og drífa sig burt úr bænum. Burt úr bænum er ætlað fyrir starfsmannafélög og hópa af öllum stærðum og gerðum, hvort sem tilefnið er árshátíð, óvissuferð, menningarferð eða hvað annað sem hópurinn þinn vill gera.
Við gerum hópnum þínum frábær ferðatilboð til allra áfangastaða okkar innanlands, einnig til Færeyja, hvort sem ferðinni er heitið norður, suður, austur eða vestur til að njóta þeirrar fjölbreyttu afþreyingar sem í boði er í skemmtun, menningu, ævintýrum og upplifun af öllu tagi, vítt um landið.
Kannaðu hópafargjöldin fyrir þinn hóp og þá möguleika sem í boði eru á hverjum stað.
Glæsileg gistiaðstaða í boði á öllum stöðum. Gerum tilboð í flug og gistingu. Gerum einnig tilboð í flug eingöngu.
Lágmarksfjöldi í hverjum hóp er 10 manns.
Þú getur fyllt út formið hér að neðan eða haft samband í síma 570-3075.


