Innifalið:
Þessi litla eyja sem liggur um það bil 40 km norður af meginlandinu er sívinsæl á meðal ferðamanna sem vilja setja fót norður fyrir heimskautsbaug og fá viðurkenningarskjal þess efnis.
Leiðsögumaður sem búsettur er á eynni tekur á móti farþegum á flugvelli og fer með þá í um klukkustundar langa gönguferð. Á leiðinni segir hann frá sögu Grímseyjar og dýralífi og að sjálfsögðu er svo stigið yfir heimskautsbaugin sjálfan.