English  Dansk
Forsíða

Hápunktur norðursins

Verðlisti 2010

Vor og haust kr. 37.640
Sumar kr. 39.600
Börn: 50% af flugverði
Ungabörn: 10% af ofangreindu

Innifalið:

Flug, Reykjavík - Akureyri - Reykjavík
Rútuferð, Akureyri - Mývatn, með leiðsögumanni
Rútuferð, Mývatn - Húsavík, ekki með leiðsögumanni
Bátsferð á Húsavík með leiðsögumanni
Rútuferð, Húsavík - Akureyri, ekki með leiðsögumanni
Flugvallaskattar

Tímabil

Vor og haust:  21. - 31. ágúst
Sumar: 18. júní - 20. ágúst

 

Senda fyrirspurn

Hápunktur norðursins

Ferðin hefst á Reykjavíkurflugvelli, en þaðan er um 50 mínútna flug til Akureyrar. Rúta með staðarfróðum leiðsögumanni ekur farþegum svo áleiðis til Mývatns.


 

Kröflueldar

Á aðeins einum degi má fara yfir eitt stórfenglegasta svæði landsins, þar sem Kröflueldar geisuðu í allt að 10 ár á bilinu 1975-1984.


 

Náttúruperlur Mývatns

Á leiðinni til Mývatns, sem dregur nafn sitt af mýflugum þeim er þar hafast við, er staldrað við hjá öðrum náttúruperlum.


 

Dimmuborgir og leirhverir

Leirhverir í öllum stærðum og gerðum eru ótrúleg sjón, og Dimmuborgarhraun er eitthvað sem lætur engann ósnortinn. Kynjamyndir og stórfengleiki þessa staðar stafar af sífelldum umbrotum landsins, og sundurtætt hraunið er stórmerkilegt náttúruundur.


 

Sjóferð frá Húsavík

Um hádegisbil er svo ekið til Húsavíkur þar sem boðið er uppá sjóferð, en þaðan halda hvalaskoðunarmenn úti öflugum rekstri. Það eru næsta öruggt að í sjóferðinni megi sjá höfrunga eða hnísur að leik, og hver veit nema aðrar hvalategundir láti sjá sig.


Að lokinni ánægjulegri dagsferð er flogið til Reykjavíkur með kvöldvélinni frá Akureyri.


 

Hápunktur norðursins er í boði alla daga frá 18. júní til 31. ágúst 2010.

Brottfarardagur
Veldu dagsetningu
Heimkoma
Veldu dagsetningu
Lokafargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og eru ekki bókanleg
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára
Inspired by Iceland