Innifalið:
Dagsferð þessi hefst á Ísafirði en þaðan er haldið beint í kajakana, þar sem ferðalangar fá að spreyta sig á hafi úti, á sjókajökum, þar sem nálægðin við náttúruna nær hámarki. Kajökum er skotið í sjó og ævintýralega ferð undir snarbröttum hlíðum hinna vestfirsku fjalla hefst. Ferðatilhögun fer eftir getu og reynslu hvers og eins. Eftir ógleymanlega ferð sem tekur um 2-3 klukkutíma er gefið hádegisverðarhlé.
Að því loknu er siglt út í Perlu Djúpsins, eyjuna Vigur með farþegabát. Sú ferð sem er frábær fyrir náttúruunnendur tekur um 3-4 klukkustundir. Í fylgd með heimamönnum er gengið um eyjuna og ferðalangar fræddir um sögu og lífríki eyjarinnar. Þar er meðal annars mikið fuglalíf, æðarfuglar, teistur og lundar hafa hreiðrað þar um sig.
Að lokinni gönguferð bíður rjúkandi kaffi og pönnukökur í Viktoríuhúsi. Þegar búið er að kveðja hina góðu gestgjafa er siglt á ný til Ísafjarðar og flogið þaðan til Reykjavíkur að nýju.