Verðlisti 2010
| 01. juní - 14. júní |
kr. 62.470 |
| 15. júní - 20. ágúst |
kr. 70.590 |
| 21. ágúst - 13. sept |
kr. 62.470 |
| |
|
| Börn: |
50% af flugverði
|
| Ungabörn: |
10% af ofangreindu
|
|
Innifalið: |
|
Flug, Reykjavík - Kulusuk - Reykjavík Dagsferð í Kulusuk með leiðsögumanni, Dans og Kayak sýning ef veður leyfir Létt hressing um borð í vélinni Flugvallaskattar |
Senda fyrirspurn
Austur- Grænland
Á aðeins 2 klukkustundum er hægt að komast til Grænlands frá Íslandi og heimsækja bæinn Kulusuk.
Hrikalegt landslag
Ferð á slóðir nágranna okkar í norðri er engu lík. Tröllauknir borgarísjakar lóna úti fyrir þorpinu, þar sem húsin eru litskrúðug og virðast mega sín lítils í ógnvekjandi náttúrunni.
Á leið inn í nútímann
Í Kulusuk sem er í Ammassalik héraði, má enn sjá leifar af gamla grænlenska veiðisamfélaginu. Elstu íbúarnir eru fæddir inn í aldagamlar hefðir, þar sem verklag og lífhættir höfðu verið þeir sömu um aldaraðir. Nútíminn með sinni vestrænnu menningu hóf ekki innreið sína í Kulusuk fyrr en árið 1958 þegar Bandaríkjamenn komu þangað til að byggja þar herstöð. Enn eimir þó eftir af þessu gamla, og enn veiða menn seli, hvali og ísbirni.
Gangan að bænum
Grænlendingar eru miklir gestgjafar og mjög skemmtilegir að heimsækja. Ganga frá flugvellinum tekur um 40 mínútur. Meðfram stígnum milli flugvallarins og þorpsins eru hlaðnir haugar, sem þegar betur er að gáð, eru grafir forfeðranna. Skortur á jarðvegi gerir það að verkum að grjóti er hlaðið utan um hina látnu til að halda rándýru, fuglum og öðrum óvinsælum gestum frá.
Gangur lífsins
Nýi kirkjugarðurinn sem stendur eilítið frá þorpinu er ótrúleg sjón í þessu hörkulega landslagi. Plastblóm skreyta leiðin, en engin nöfn eru á hvítum krossunum. Trú Grænlendinga er sú að sálin lifi áfram og því fá nýfædd börn nöfn hinna látnu.
Menningararfurinn
Í Kulusuk bjóða heimamenn upp á skemmtidagskrá fyrir ferðamenn þar sem m.a. eru sýndar aðferðir veiðimanna á kayökum, síðan eru sungnir ævagamlir veiðimannasöngvar, sem varðveist hafa í munnlegri geymd. Að sýningu lokinni má ganga upp að Stórasteini þar sem veiðimenn hafa í aldanna rás farið til að skima eftir bráð sinni. Þar er útsýni gott. Ótrúlega fallegt handverk er hluti af menningararfinum og því ekki úr vegi að skoða hvað er á boðstólnum, áður en haldið er heim að nýju.
Dagsferðin til Kulusuk er í boði á tímabilinu 01.06 - 13.09. Farið er alla daga nema sunnudaga.
Einnig er boðið uppá flug og hótel í Kulusuk og í Tasilaq. Vinsamlegast hafðu samband við sölufulltrúa fyrir frekari upplýsingar.