Innifalið
Flogið er að morgni til Akureyrar þar sem leiðsögumaður tekur á móti farþegum. Rúta ekur sem leið liggur - fyrst að Goðafossi þar sem stoppað er til að njóta eins fegursta foss landsins. Þaðan er haldið til Mývatns og þar má ganga um og skoða eitt stærsta og fegursta griðland fulga í Evrópu. Eftir hádegismat er haldið á hið ótrúlega Kröflusvæði, þar sem átök náttúrunnar virðast engan endi ætla að taka. Sjóðheit gufa úr sjóðandi hverjum, gígar í öllum hugsanlegum myndum, og sléttir og land sem lítur út fyrir að hafa verið rifið í sundur.
Leirhverirnir við Hverarönd eru undurfagrir, en þaðan er haldið í gönguferð um hið sérkennilega landslag Dimmuborga og úfnar og dulúðugar kynjamyndir hraunsins skoðaðar.Ferðin endar svo í þéttbýliskjarnanum, Reykjahlíð, þar sem hægt er að fá sér bita áður en haldið er heim með kvöldvélinni til Reykjavíkur.