English  Dansk
Forsíða

Vestmannaeyjar

Verðlisti 2010

Vor kr. 20.000
Vetur kr. 19.180
Sumar: kr. 21.400
Börn:  50% af flugverði
Ungabörn: 10% af ofangreindu

Innifalið:

Flug, Reykjavík - Vestmannaeyjar - Reykjavík
Rútuferð,  með leiðsögumanni 

Ekki innifalið:

 

Bátsferð  Kr 4.440
Hádegismatur 


Tímabil

Vor mars - apríl 
mán, mið og fös
Sumar: 15. júní - 31. júlí
Daglega

 

Senda fyrirspurn

Heimaey

Það er magnað að koma til Vestmannaeyja og dagsferð um Heimaey með leiðsögumanni er eitthvað sem aldrei gleymist. Á Heimaey búa um 4500 manns á virkri eldstöð.


 

Gosið 73

Heimaey varð miðja alheimsins aðfararnótt 23. janúar 1973 þegar gos hófst í Helgafelli og 2 km löng sprunga opnaðist eftir endilangri eyjunni. Í höfninni lá fiskiskipaflotinn og á mettíma tókst að flytja flesta íbúa upp á land.

 

Dugnaður og hugvitssemi

Bjartsýni og æðruleysi Eyjamanna kom hvað gleggst í ljós þegar nokkrir vaskir menn ákváðu að verða eftir, berjast við móður náttúru og bjarga eigum sínum og framtíð bæjarins með því að sprauta vatni á hraunið.

Minning um náttúruöflin

Ótrúlegar minjar, sem hvergi eiga sína líka í heiminum, sýna aðkomumönnum hvernig hraunið braut undir sig stóran hluta af bænum. Húsabrot standa hér og hvar uppúr úfnu hrauninu, það er enn hiti í Eldfelli, og útsýnið frá toppi þess er stórkostlegt. Heimamenn hafa nú hafist handa við að grafa upp eina götu bæjarins, sem liggur undir ösku. Þar mun verða í framtíðinni minjasafn um þessa ótrúlegu daga.  

Ógleymanleg sigling

Sigling um Eyjarnar býður uppá ótrúlega stund, en þar má skoða kvínna, þar sem Keiko dvaldi meðan hann var gestur hér, Klettshelli, þar sem undrafagur hljómburður er og ef vel liggur á skipstjóranum mundar hann hljóðfæri sitt og leyfir gestum að heyra.


Eggjataka og lundaveiði.

Í Eyjunum má sjá litil hús híma út á brúnum bjarganna, en þar hafast bjargveiðimenn við á meðan þeir stunda eggjatöku og lundaveiði. Snarhnípt björgin með litskrúðugu fuglalífi , eru heimkynni lundans sem er einkennisfugl Vestmannaeyjanna.


 

Bragðað á náttúruafurðum

Að lokinni siglingu má svo fara reyna sig í þjóðarsporti Eyjamanna sem er að spranga á snarbröttum klettaveggjum, og fara svo inn á veitingahús og fá sér kvöldverð að hætti heimamanna- því enginn kann betur að matreiða lundann en Eyjamaðurinn.

Vestmannaeyaferðin verður í boði:
1. mai - 31. júlí, daglega.
mars - apríl og september, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga.

Bátsferðin verður í boði 1. maí - 31. júlí 2010.



 

Brottfarardagur
Veldu dagsetningu
Heimkoma
Veldu dagsetningu
Lokafargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og eru ekki bókanleg
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára
Inspired by Iceland