English  Dansk
Forsíða

Akureyri

 

Akureyri iðandi af mannlífi .

Því ekki að lyfta sér upp og fara til Akureyrar sem er nánast eins og "litla Dublin". Þar er alveg hægt að versla eins og í útlöndum, þar er úrval menningarstofnana til að heimsækja og þar eru veitingastaðir og krár á hverju horni.


 

Líf og listir

Útivistafólk getur heimsótt stórkostlegar náttúruperlur, menningarvitar geta séð list- og leiksýningar á heimsmælikvarða, og íþróttaáhugamenn geta valið úr flestum þeim íþróttagreinum sem stundaðar eru hérlendis. Fyrir þá sem stunda vetraríþróttir ss. skíði og skauta er Akureyri staðurinn!


 

Dekrað við þig

Dekur við líf og sál er nauðsynlegt hverjum manni. Nudd- og snyrtistofur bjóða uppá slökunar og fegrunarmeðferðir og hin dásamlegu jarðböð við Mývatn eru himnesk, því þar má njóta náttúrunnar og slaka á um leið. Þeir sem vilja halda sig í bænum geta skroppið í sundlaugina á Akureyri og rabbað um daginn og veginn við þjóðkunna Norðlendinga.


 

Næring fyrir líf og sál

Norðlenskir listakokkar eru sífellt að finan upp nýja rétti sem kitla bragðlaukana. Veitingastaðir Akureyrar og nágrennis bjóða upp á rómatíska og notalega stemningu, og að kvöldverði loknum er tilvalið að kanna næturlíf bæjarins, kaffihús, bari og skemmtistaði og fá sér svo eina pylsu með rauðkáli á Ráðhústorginu áður en lagst er til hvílu á einhverju af hinum fínu gististöðum Akureyringa.

Allar upplýsingar um upplyftingu fyrir eldriborgara er hægt að fá hjá hópadeild Flugfélags Íslands í síma 570-3075 eða með því að senda póst á hopadeild@flugfelag.is



Brottfarardagur
Veldu dagsetningu
Heimkoma
Veldu dagsetningu
Lokafargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og eru ekki bókanleg
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára
Inspired by Iceland