Austurland
Austurland er nú meira í umræðunni en nokkru sinni fyrr. Á meðan náttúruunnendur og virkjanamenn takast á um hina stórbrotna landslag og lífríki, blómgast þar mannlíf og þjónusta eykst sem aldrei fyrr.
Fornmenn á ferðinni
Óvæntir hlutir af óvenjulegum toga gætu líka gerst í slíkri ferð, og því ættu allir að skoða landið sitt vandlega. Hjón á göngu fundu eitthvað oddhvasst sem stóð upp úr jörðinni og líktist sverði. Þegar betur var að gáð, lágu bein á víð og dreif. Einn merkasti fundur íslenskrar fornleifa var hér á ferðinni, eða Þórisárkumlið svonefnda, en haugbúi þess og hestur eru nú til sýnis á Minjasafni Austurlands.
Sigling með Orminum
Ýmsar aðrar verur úr forneskjunni eru til alls vísar, en Lagafljótsorminum heldur enn dulúð sinni og sýnir sig þegar vel liggur á honum- og því ekki úr vegi að fara í rómantíska siglingu til Atlavíkur og reyna að koma auga á hann.
Útivistarparadís
Möguleikar til útivistar, göngu- grasa- og veiðiferða eru engu líkar á Austfjörðum, og í veðurfarinu sem stundum er líkt og meginlandsloftslag Evrópu, er hægt að njóta lífsins.
Lúxus líf
Hótel Hérað býður upp á lúxusgistingu og á staðnum er góð sundlaug og fyrir þá sem vilja rækta líkamann er jógamiðstöð og líkamsræktarstöð! Kaffishús og glæislegir veitingastaðir bjóða upp á notalega stemmningu þegar dagur er að kvöldi kominn.
Taktu svo hús á hinum geysiflínku handverksmönnum Austfjarða og finndu eitthvað til minningar um ferðina.
Allar upplýsingar um upplyftingu fyrir eldriborgara er hægt að fá hjá hópadeild Flugfélags Íslands í síma 570-3075 eða með því að senda póst á hopadeild@flugfelag.is