English  Dansk
Forsíða

Færeyjar

Pakkar
 

 

Færeyjar

Það er fátt skemmtilegra en að bregða undir sig betri fætinum og læra nýja dansa. Þess vegna er heimsókn til nágranna okkar og frændfólks í Færeyjum einstök leið til að lyfta sér upp og fara í ferð sem enginn gleymir. 


Selspik og skerpikjöt

Í Þórshöfn er hægt að eiga notalega stund fjarri heimahögunum á stórfínum gististöðum, skoða yndisfagra náttúru sem er lík þeirri íslensku, en er bara samt allt öðruvísi. Svo er einstaklega gaman að njóta gestrisni Færeyinga og reyna bragðlaukana og smakka á færeyskum sælkeraréttum! Grindhvalaspik og skerpikjöt er eitthvað sem enginn ætti að láta framhjá sér fara!

 

Menning og mannlíf

Færeyingar eiga fjöldann allan af söfnum og menningarminjum. Einn skemmtilegasti staðurinn er Kirkjubær í um 13 km fjarlægð frá Þórshöfn. Þar eru varðveittar miðaldarústir kirkju heilags Magnúsar. Þar er trúarleg- og menningarleg miðstöð Færeyinga.

Skipulögð afþreying

Fyrir þá sem hafa áhuga á skipulagðri afþreyingu mælir Flugfélag Íslands með Davíð Samúelssyni ferðamálaráðgjafa. Davíð ólst að hluta til upp í Færeyjum og þekkir því vel til Færeyja og því sem eyjarnar hafa upp á að bjóða. Hægt er að hafa samband við Davíð í s. 8613426 eða með því að senda póst á davidsam@eyjar.is.


Allar upplýsingar um upplyftingu fyrir eldriborgara er hægt að fá hjá hópadeild Flugfélags Íslands í síma 570-3075 eða með því að senda póst á hopadeild@flugfelag.is


Brottfarardagur
Veldu dagsetningu
Heimkoma
Veldu dagsetningu
Lokafargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og eru ekki bókanleg
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára
Inspired by Iceland