Verð
Kostnaður á mann er kr 150.000.-
miðað við tveggjamanna herbergi.
Aukakostnaður á einbýli er kr 8.750.-
þátttöku ber að tilkynna fyrir 1. april.
Full greiðsla með greiðslukorti fyrir 19. apríl.
Hringja skal í númer 570 3075 hópadeild Flugfélags Íslands
og gefa upp greiðslukortanúmer
Upplýsingar
Innifalið Flug, fram og tilbaka.
Flutningur til og frá flugvelli.
Fullt fæði.
Gönguferð með leiðsögn um Ilulissat.
Hámarks þátttaka er 24.
“Fyrstur kemur fyrstur fær”.
Tenglar
Nánari upplýsingar veitir:
Emil Guðmundsson,
Símar 564-3606 eða 898-9776
Fax 564-3622.
Netfang
emil@simnet.is Heimasíða
www. simnet.is/emil
Ilulissat er þriðja stærsta byggðarlagið á Grænlandi með 4.500 íbúum ( 3.500 hundar eru á staðnum ). Bærinn er á miðri vesturstönd landsins um 200 km. norðan við norðurheimskautsbaug.
Ilulissat þýðir ísfjallið.
Grænlands –danski heimskautafarinn Knud Rasmussen fæddist og ólst þar upp. Jakob Severin ásamt Paul Egede stofnuðu trúboðsstöð þar árið 1727 og nefndu staðinn Jakobshavn.
Ilulissat er við Diskoflóann. Á sumrin getur hiti verið frá 20°-25°c. Norrænir menn komu þar í veiðiferðir frá vesturströndinni (Eystri og vestribyggð) og nefndu Norðursetu.
Ilulissat ísfjörðurinn skilar af sér mesta jökulruðningi á norðurhveli jarðar. Hann rennur fram 20-35 m. á dag og skilar af sér 20 milljón tonn af ís, út í fjörðinn á hverju ári. Ísjakarnir eru allt að 1000 m. háir og standa um 150m. upp úr hafinu. Ilulissat ísfjörðurinn var tilnefndur á Heimsminnjaskrá UNESCO árið 2004.

Dagur 1. Laugardagur 19. júní.
Flugið frá Reykjavíkurflugvelli kl. 12:00 með Dash flugvél Flugfélags Íslands. Lent í Ilulissat kl. 13:15, við flugvellinn er stærsti hundasleði heims en hann komst í heimsmetabók Guinness 1994 , en hann fór með 108 farþega dreginn af 260 hundum, sleðinn er 23m. langur og 3m. breiður. Þar er einnig sleði sem notaður var á jólasveinafundi í bænum árið1995.
Ekið frá flugvelli (5 km.) að Hotel Arctic , sem er án efa besta 4ja stjörnu hótel á Grænlandi. Gist er í tveggjamanna herbergjum. Eftir innritun og hádegisverð er bærinn skoðaður með dönskum/grænlenskum leiðsögumanni.
Kvöldverður á hótelinu.
Dagur 2. Sunnudagur 20. júní.
Að loknum morgunverði er farið í gönguferð til Ísfjarðarinns og rústir Eskimóbyggðar skoðaðar við þorpið Sermermiut . Haldið verður áfram þangað til við finnum góðan stað til hádegisverðar (nestispakki). Farið til baka til Ilulissat í gegnum fjallaskarð við Ísfjörðinn.
Kvöldverður á hótelinu.
Dagur 3. Mánudagur 21. júní.
Morgunverður. Í dag er þjóðhátíðardagur Grænlendinga. Bátsferð til Ísfjarðarinns, 2½ tími með hádegisverði (nestispakki). Farið verður með tveimur bátum sem hver um sig tekur 12 manns. Síðdegis verður Grænlensk fjölskylda heimsótt og boðið upp á kaffi, te og kökur. Tekið þátt í hátíðargleði landsmanna.
Kvöldverður á hótelinu.
Dagur 4. Þriðjudagur 22. júní.
Morgunverður. Ekið út á flugvöll um hádegisbil og brottför til Reykjavikur kl. 14:15, lent á Reykjavíkurflugvelli kl. 20:20
Nánari upplýsingar veitir Emil Guðmundsson, símar 564-3606 eða 898-9776
Fax 564-3622, netfang emil@simnet.is. heimasíða www. simnet.is/emil