Upplýsingar
Innifalið:
Flug fram og tilbaka til Narsarsuaq.
Bátsferðir, gisting, matur
Akstur og leiðsögn.
Þáttöku þarf að tilkynna fyrir 15 april.
Hámarksþátttaka í hverri ferð er 24.
“Fyrstur kemur fyrstur fær”.
Tenglar
Nánari upplýsingar veitir Emil Guðmundsson
Símar 564-3606 eða 898-9776
Fax 564-3622
Netfang emil@simnet.is
Heimasíða www.simnet.is/emil
Upplifið Suður-Grænland
Boðið er upp á fjögra daga ferðir í júlí til að kynnast náttúru, íbúum og menningu Suður-Grænlands, sem er næsta nágrannaland okkar. Tíminn er knappur og því nýttur til hins ítrasta, en lögð er áhersla á að ferðirnar séu engum líkamlega ofviða.
Siglt er innan fjarða milli staða á ágætu hraðfara skipi, sem hópurinn hefur til ráðstöfunar allan tímann. Íslenskir og danskir fararstjórar.
Dagur 1. Mánudagur.
Flogið frá Reykjavíkurflugvelli kl. 13:45 með Fokker flugvél Flugfélags Íslands, lent á Narsarsuaq flugvelli kl. 14:45.
Haldið beint til skips, siglt út Eiriksfjörð til bóndabæjarins Itivdleq , með uppákomum, s.s. ískönnun á leiðinni.
Ekið með fólk og farangur til hins fornsögulega þorps, Garða (Igaliko), góður göngutúr fyrir þá sem vilja ganga, þar var áður þingstaður og dómkirkja norrænna manna á Grænlandi.
Gist verður í tveggja manna herbergjum í gistiheimili og sumarhúsum í Görðum, eina nótt,
komutími til Garða er ca. 17:30.
Kvöldverður í Görðum.
Dagur 2. Þriðjudagur.
Morgunverður, síðan gengið um Garða.
Siglt út Einarsfjörð til Hvalseyjarkirkju, sem er ein best varðveitta miðaldarkirkja á norðurslóð. Þar er stórbrotið landslag og miklar rústir af einum stærsta bæ Íslendinga í Grænlandi á miðöldum. Farið í land og dvalið dágóða stund.
Síðan er siglt til Qaqortoq (Julianehåb) sem er stærsti bær á Suður-Grænlandi, með um 3.500 íbúa. Komutími er ca 12:00.
Gist verður á Hotel Qaqortoq í eina nótt, en það er prýðilegt 3ja stjörnu hótel.
Kvöldverður og grænlensk skemmtiatriði.
Dagur 3. Miðvikudagur.
Morgunverður.
Kl. 10:00 er lagt á stað og siglt inn Eiriksfjörð til Brattahlíðar (Qassiarsuk) , komutími er 14:45. Þar búa um 50 manns, en áður bjó þar sem kunnugt er Erikur rauði og fólk hans . Brattahlíð ásamt Görðum var annar miðpunktur hinnar fornu norrænu byggðar.
Skoðaðar verða hinar ríkulegu mannvistarleifar norrænna manna, m.a. fornu rústir af bæ Eiriks rauða, og Þjóðhildarkirkja og Eiriksstaðir, sem bæði voru endurreist í upprunarlegri gerð árið 2000.
Snæddur verður hádegisverður í Brattahlíð og upp úr miðjum degi verður siglt til Narsarsuaqflugvallar , en þangað er aðeins 10 mín. sigling.
Gist verður á Hotel Narsarsuaq sem er prýðilegt og þar verður snæddur kvöldverður.
Dagur 4. Fimmtudagur.
Morgunverður og síðan verður ekið með þátttakendur um fallegt landslag og minjar í nágreni hótelsins, einnig farið í flugsafn.
Hádegisverður á hótelinu, en síðan ekið á flugvöll kl. 13:30 til brottfarar til Reykjavikur kl. 15:45, komutími í Reykjavik er kl. 20:45.
Nánari upplýsingar veitir Emil Guðmundsson, símar 564-3606 eða 898-9776
Fax 564-3622, netfang emil@simnet.is, heimasíða www.simnet.is/emil