Gefðu ímyndunaraflinu lausann tauminn, og skiptu um umhverfi. Lyftu þér upp í heimsborginni Reykjavík og bjóddu einhverjum skemmtilegum með. Í höfuðborginni ætti engum að leiðast. Af nógu er að taka, á öllum sviðum.
Komdu til Reykjavíkur og finndu menningarviðburði sem hæfa þér, uppákomur listamanna á heimsmælikvarða, söfn af hvers kyns tegund sem reglulega skipta út sýningum sínum, stundaðu útivist og íþróttir, eða farðu bara í verslunarferð með gamla sniðinu. Allt þetta er hægt að gera í höfuðborginni, nú eða komdu bara og njóttu mannlífsins sem er síbreytilegt og fjölbreytt.
Gististaðir eru til af öllum stærðum og gerðum í öllum verðflokkum. Njóttu svo kvöldsins á einhverjum af þeim ótalfínu veitingastöðum. Það er nánast sama hversu oft þú kemur til borgarinnar, það er nánast öruggt að það var einmitt í þeirri viku verið að opna eitthvað nýtt!Borgin hefur svo margar hliðar að engin leið er að kanna þær allar í einni ferð. Veldu brot af því besta sem í boði er og njóttu Reykjavíkur.
Flugfélag Íslands býður upplyftingu fyrir eldri borgara allan ársins hring, pakkaferðir með flugi og fyrsta flokks gistingu ásamt morgunverði á frábæru verði til Reykjavíkur. Gerum einnig tilboð í flug eingöngu.Hópferð gefur kostur á margs konar upplifun á hverjum stað t.d. fara í spennandi óvissuferð og njóta útivistar og líkamlegrar endurnæringar í fögru umhverfi.Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá þjónustufulltrúa hópadeildar í síma 570-3075 eða með því að senda póst á netfangið hopadeild@flugfelag.is