English  Dansk
Forsíða

Gott að vita áður en haldið er í veiði til Grænlands

Veður er alla jafnan frekar gott á Grænlandi frá vori fram á haust og staðveður ekki óalgeng með langvarandi stillum og sól.
Vissulega getur hann rokið upp og er þá betra að vera við öllu búinn varðandi útbúnað.

Mosító flugan er landlæg á Grænlandi og getur verið ansi aðgangshörð. Þó fer það nokkuð eftir eftir landssvæðum og tíma.

Nauðsynlegt að hafa með sér;

Léttan bakpoka sem getur tekið vöðlur og skó, aukaföt, vatnsbrúsa ofl

Góða gönguskó og léttan göngufatnað

Einn umgang af hlýjum fötum og regnheldum

Flugnanet og eitt til vara / moskítósprey eða áburð. Mygga roll on virkar vel

Ofnæmistöflur, kveisutöflur og plástur fyrir sára fætur – fæst í næsta apóteki án lyfseðils.

Sólarvörn

Fyrir þá sem veiða með flugu;

Tvær flugustangir - fyrir línu 3# - 6#

Safn af straumflugum - og þurrflugum. Caddis (vorflugur) frá ljósum í dökkbrúnar er í nokkru magni á Grænlandi og svo moskítóið. Litlar svartar þurrflugur t.d. black gnat og CDC. Gott úrval af púpum með eða án kúlu.

Mest er veitt með flotlínu en takið með sökktauma

Brottfarardagur
Veldu dagsetningu
Heimkoma
Veldu dagsetningu
Lokafargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og eru ekki bókanleg
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára
Inspired by Iceland