Á tímum samkeppni í verslun og þjónustu byggist góður árangur æ meir á því að vera fyrstur á markaðinn með vörur sínar og þjónustu. Flugfrakt Flugfélags Íslands er því ákjósanlegasti kosturinn þegar tryggja þarf aukið forskot á markaðnum.
Til að viðskiptavinir okkar nái hámarksárangri bjóðum við upp á að sækja sendingar til viðkomandi fyrirtækis og koma henni beint til viðtakanda. Allt sem þú þarft að gera er að hringja - við komum og sækjum, fljúgum með fraktina og sendum til viðskiptavinarins. Þannig getum við tryggt fljóta og örugga þjónustu með fraktsendingar frá upphafi til enda.