Afgreiðslustaðir Flugfraktar
Vöruafgreiðslan á Reykjavíkurflugvelli:
Virka daga frá kl. 7:00-18:00
Laugardaga frá kl. 8:00-12:00
Sími 570 3400
Fax 570 3450
Deildarstjóri: Vigfús Vigfússon, sími 570 3406, vigfusv@flugfelag.is
Útflutningur: Óskar Frímannsson, oskarf@flugfelag.is sími 570 3404
Gjaldkeri: Guðlaug J. Haraldsdóttir, sími 570 3410
Afgreiðslur á landsbyggðinni:
Á Akureyrarflugvelli er sérstök vöruafgreiðsla sem opin er virka daga frá kl. 8:00-18:00.
Símanúmer vöruafgreiðslunnar er 460 7060, fax 460 7010.
Á flugstöðvunum á Egilsstöðum, Ísafirði og Vestmannaeyjum er frakt afgreidd meðan opið er.
Flogið er með frakt til allra áfangastaða Flugfélags Íslands. Við bendum einnig á rútuferðir til nærliggjandi staða í tenglsum við okkar flug en þannig komum við fraktinni áleiðis til þín.
Frá Ísafirði
Bolungarvík
Sérleyfisbílar með morgun- og kvöldvél. U.þ.b. 15 mín. akstur.
Frá Egilsstöðum
Reyðarfjörður - Eskifjörður - Neskaupstaður
Sérleyfisbílar með morgunflugi mánudaga til laugardaga. Einnig með hádegisflugi mánudaga til föstudaga.
Fáskrúðsfjörður - Seyðisfjörður
Sérleyfisbílar með morgunflugi mánudaga til föstudaga. Einnig til Seyðisfjarðar miðvikudagskvöld.
Frá Akureyri
Beint flug til Grímseyjar, Þórshafnar og Vopnafjarðar.
Til að tryggja að sending komist samdægurs í hendur viðtakanda á Þórshöfn eða Vopnafirði, þarf að koma henni í flug frá Reykjavík fyrir kl. 7:30.
Einnig er Flugrúta frá Akureyri til Húsavíkur fjórum sinnum á dag alla virka daga.