English  Dansk
Forsíða

Hagkvæmt greiðslu- og viðskiptakort 

Flugkort er rafrænt greiðslu- og viðskiptakort Flugfélags Íslands og er ætlað þeim sem ferðast mikið innanlands eða til Grænlands og Færeyja.  
 

Viðskiptayfirlit 

Handhafar Flugkorts fá sent viðskiptayfirlit reglulega þar sem sjá má útlagðan ferðakostnað og önnur viðskipti við samstarfsaðila Flugkortsins á tímabilinu. Hagræðið er óumdeilanlegt því með þessu er fyrirtækjum í reikningsviðskiptum við Flugfélag Íslands gert mun auðveldara að fylgjast með hinum ýmsu kostnaðarþáttum sem fylgja ferðalögum starfsmanna.  
 

Afsláttur út á Flugkort 

Flugkort má nota að vild hjá öllum þeim fyrirtækjum sem að kortinu koma. Um hver mánaðamót er greiddur afsláttur af viðskiptum við Flugfélag Íslands inn á kortareikninginn og nemur hann 10-30%, allt eftir umfangi viðskiptanna. Kjósi korthafi að nýta sér tímabundin tilboð samstarfsaðilanna getur hann greitt með Flugkortinu en frekari afsláttur er þá ekki veittur og ferða- og vildarpunktar eru ekki greiddir. Afsláttur samstarfsaðilanna er að lágmarki 10-35% og er dreginn frá um leið og viðskiptin eiga sér stað.  


Hertz býður afslátt út á Flugkort 

Hertz bílaleiga býður Flugkortshöfum tvenns konar tilboð:  Annars vegar með 100 km og tryggingu og hinsvegar með ótakmörkuðum akstri og tryggingu. 100 km verðið er lægsta 100km tilboð hverju sinni og ótakmarkaði aksturinn er 35 % afsláttur af netverðum. 
 

Fríðindi í golfinu


Handhafar Flugkortsins geta gegn framvísun Flugkortsins fengið 25% afslátt á vallargjaldi á völlum Golfklúbbs Reykjavíkur og á Litla vellinum á Korpu.  Afsláttargjaldið gildir alla virka daga fyrir kl. 14:00 og eftir kl. 13:00 um helgar.  Afsláttargjaldið gildir ótakmarkað fyrir handhafa Flugkortsins á hverju ári eða þann tíma sem vellir klúbbsins eru opnir.  Handhafar Flugkorsins fá 10% afslátt á Litla vellinum á Korpu.  


Allur ferðakostnaður með Flugkorti

Með Flugkortinu má til dæmis greiða flugfarseðla með Flugfélagi Íslands, einnig bílaleigubíla og hótelgistingu hjá völdum fyrirtækjum í samstarfi við Flugkortið.  
 

Bestu kjörin hverju sinni 

Séu gæðin lögð til grundvallar eru handhafa Flugkorts ávallt tryggð betri kjör hjá samstarfsaðilunum en annars staðar, hvort sem það er á bílaleigubílum, hótelgistingu eða öðrum þjónustuþáttum.  
 

Sérþjónusta og fríðindi

Handhafi Flugkorts nýtur margvíslegra fríðinda. Þar má til dæmis nefna afslátt af vörum og þjónustu, hagræðingu við innritun til flugs, forgang á biðlista í flug og nákvæmt reikningsyfirlit mánaðarlega þar sem allur ferðakostnaður er sundurliðaður.  Að auki er Flugkortshafa heimilt að ferðast innanlands með 30kg i stað 20kg.
 

Afsláttur er veittur af:

  flugi
bílaleigubílum
hótelgistingu
 

Fríðindahandbók

Flugkorti fylgir handbók með upplýsingum um samstarfsfyrirtæki, þjónustu og kjör sem í boði eru.  Þau fyrirtæki sem veita Flugkortshöfum afslátt eru:
Icelandair Hotels - 10% afsláttur af gistingu
Hertz Bílaleiga - 35% afsláttur 
AVIS Bílaleiga - 35% afsláttur
Bílaleiga Akureyrar - 35% afsláttur

Athugið að afsláttur er ekki veittur af tilboðum
 

Árgjald

Korthafi greiðir árgjald Flugkortsins sem er kr. 500. Korthafi heimilar útgefanda að skuldfæra kortareikning sinn fyrir árgjaldi.  Útskriftargjald / skuldfærslugjald er innheimt fyrir hvern útsendan gíróseðil/reikning.


Notkun Flugkorts er hluti af góðum rekstri. Fyrirtæki í reglulegum viðskiptum við Flugfélag Íslands geta fengið Flugkort skráð á starfsmenn sína, einn eða fleiri og dregið þannig verulega úr kostnaði tengdum ferðalögum.


 

Brottfarardagur
Veldu dagsetningu
Heimkoma
Veldu dagsetningu
Lokafargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og eru ekki bókanleg
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára
Inspired by Iceland