Unnt er að taka á leigu með stuttum fyrirvara allar gerðir flugvéla Flugfélags Íslands, hvort sem um farþega- eða vöruflutninga er að ræða. Vélarnar eru misstórar, frá 37 til 50 sæta, og geta þær sinnt verkefnum af ýmsu tagi, bæði innanlands og í flugi milli landa.
Nú þegar hefur Flugfélagið áratugareynslu af slíkum vélum hér á landi. Fokker 50 vélarnar eru rúmgóðar, hraðfleygar og sérstaklega hljóðlátar og henta einkar vel til farþegaflutninga. Leiga pr. klst. er kr. 400.000
DASH 8 vélar hafa ýmsa eiginleika sem ekki hafa verið í boði á íslenskumflugmarkaði, þær þurfa stutta flugbraut, t.d. getur hún farið fullhlaðin afum 800 metra flugbraut, hún þolir meiri hliðarvind en sambærilegar vélar oghún tekur meiri frakt og getur einnig verið sérstaklega útbúin tilfraktflutningaBombardier framleiðandi DASH 8 vélanna er leiðandi í framleiðslu flugvélaog hefur áratuga reynslu á því sviði. Bombardier afhenti á síðast ári áfjórða hundrað flugvéla til nýrra eigenda og er stærsti framleiðandi íflokki flugvéla með undir 100 farþegasæti.Leiga pr. klst. 365.000