Gott að vita
Bókun
Hægt er að bóka flug með Flugfélagi Íslands á www.flugfelag.is eða með því að hringja í þjónustuver í síma 570-3030 . Þjónustuver Flugfélags Íslands er opið alla virka daga milli 07:00 - 18:00 og um helgar frá 08:00 - 16:00. Einnig er hægt að fá upplýsingar um komur og brottfarir í síma 570-3060 eða á textavarpi síðu 422 til 423.
Persónuskilríki
Nauðsynlegt er að allir farþegar sýni persónuskilríki við brottfarahlið til að hægt sé að gæta fyllsta öryggis allra farþega.
Ferðast til Grænlands / Færeyja
Allir farþegar þurfa að hafa vegabréf eða ökuskírteini meðferðis, ekki er nóg að framvísa debet/kredit korti.
Mæting á flugvöll
Mæting er að lágmarki 30 mín. fyrir brottför í innanlandsflugi og 60 mín. fyrir brottför í millilandaflugi. Mikilvægt er að viðskiptavinir mæti tímanlega til að hægt sé að halda áætlun.
Dýr
Leyfilegt er að taka dýr með sér í flug og verður að taka það fram við bókun. Þó skal það tekið fram að eigendur þurfa sjálfir að koma með búr og gefa þarf dýrunum róandi lyf í samráði við dýralækni fyrir brottför. Krafa er gerð um að búrið sé úr hörðu efni þannig að búrið leggist ekki saman við flutning og að gólfið í búrinu sé vatnshelt. Dýrin eru höfð í farangursgeymslu á meðan flugi stendur. Sama hitastig er í farangursgeymslum og farþegarými vélanna.
Verð miðast við stærð búra.
- Dýr - lítið kr. 1500
- Dýr - miðlungs kr. 3.000
- Dýr - stórt kr. 6.000
Viðmiðunarstærðir búra:
-
Lítið: 48cm x 32,5cm x 29cm.
-
Miðlungs: 58cm x 37cm x 32cm.
-
Stórt: 68cm x 48cm x 45,5cm
Súrefnisþjöppur
Farþegum er heimilt að hafa samþykktar súrefnisþjöppur (Portable Oxygen Concentrators (POC)) með sér um borð. Eftirfarandi tæki eru leyfð af Flugfélagi Íslands:
Notkun súrefnisþjappa er heimil á öllum stigum flugferðarinnar að því gefnu að tæki sem er í notkun sé skorðað undir sætinu fyrir framan farþegann eins og hvern annan handfarangur á meðan flugvélin er í akstri, flugtaki eða lendingu.
Súrefnisþjöppur hafa ekki áhrif á reglur félagsins um fjölda handfarangurs um borð.
Við bókun flugs þarf að koma fram að fyrirhuguð er notkun á surefnisþjöppu um borð.
Farþegi þarf að framvísa við innritun, undirritaða staðfestingu læknis þar sem fram kemur:
Farþeginn þarf að hafa þessa staðfestingu á sér á meðan á flugi stendur og framvísa til áhafnar ef hann er beðinn um það. Hægt er að nálgast eyðublað þetta á heimasíðu félagsins.
Farþegi má eingöngu nota krem og smyrsl sem eru samþykkt og örugg til notkunar við súrefnisgjöf. Farþeginn verður að vera með nægilegt magn af auka rafhlöðum sem duga í flugferðinni sem og gera ráð fyrir óvæntum seinkunum í flugi sem gætu komið upp.Farþeginn þarf að ganga úr skugga um að auka rafhlöður sem geymdar eru í handfarangi séu pakkaðar á þann hátt að ekki stafi af hætta vegna skammhlaups.
Félagið getur því miður ekki útvegað súrefnisþjöppur eða rafhlöður í þær.
Nánari upplýsingar um staðfestingu læknis ofl. er að finna hér
Ertu smeyk/ur við að fljúga ?
Rúnar Guðbjartsson, sálfræðingur og fyrrverandi flugstjóri, heldur reglulega flughræðslunámskeið fyrir þá sem eru hræddir eða smeykir við að fljúga. Nánari upplýsingar er að finna á www.tilfinningatamning.is eða í síma 849 6480 . Einnig hægt að senda Rúnari netpóst á netfangið runargu@simnet.is
FRELSI TIL FERÐA
-námskeið við flughræðslu
Kvíðameðferðarstöðin býður nú upp á námskeið við flughræðslu í samstarfi við Flugfélag Íslands.
Á námskeiðinu verða kenndar leiðir hugrænnar atferlismeðferðar til að draga úr hræðslu tengdri flugferðum með það að marki að fólk eigi hægar um vik að ferðast.
Stjórnendur námskeiðsins eru Gunnar Guðjónsson flugstjóri, dr. Eiríkur Örn Arnarson og sálfræðingar Kvíðameðferðarstöðvarinnar.
Námskeiðið hefst mánudaginn 10. maí 2010 og stendur yfir í 4 vikur, 1x í viku í 3 klst í senn.
Skráning fer fram hjá Kvíðameðferðarstöðinni í síma 534-0110/822-0043 eða með tölvupósti á kms@kms.is en skráningu lýkur fimmtudaginn 6. maí n.k.
Dagsskrá námskeiðs:
Mánudagur 10 . maí kl 18:00-21:00
Fræðsla sálfræðinga um fælni, óttaviðbragðið og þætti sem viðhalda flughræðslu. Flughræðsla hvers og eins kortlögð. Jafnframt veitir flugstjóri fræðslu um flugeðlisfræði. Slökun kynnt til sögunnar.
Mánudagur 17. maí kl 18:00-21:00
Fræðsla flugstjóra um flugeðlisfræði. Sálfræðingar fjalla ítarlega um þátt hugarfars og hvernig megi hafa áhrif þar á. Farið í vettvangsferð þar sem veitt er innsýn í stjórnklefa og tækjabúnað flugvéla.
Fimmtudagur 20. maí kl 18:00-21:00
Fræðsla flugstjóra um flugveður, þjálfun flugáhafnar og viðhald flugvéla. Fræðsla sálfræðinga um leiðir til að takast á við óttann. Vettvangsferð.
Mánudagur 31. maí kl 18:00-21:00
Fræðsla flugstjóra um viðhald flugvéla. Samantekt, bakslagsvarnir og lokaundirbúningur.
Að lokum: Flugferð til einhvers áfangastaðar Flugfélags Íslands innanlands.