English  Dansk
Forsíða

Stundvísi


Eitt aðalmarkmið Flugfélags Íslands er að áætlun okkar standist og að flugvélarnar fari frá okkur á tilsettum tíma.  Stundvísi sem gefin er upp vikulega á www. flugfelag.is er samkvæmt alþjóðlegum staðli og allt árið 2005 fóru að meðaltali 90% vélar félagsins á tíma.


Helstu ástæður fyrir því að flugvél seinkar geta verið margvíslegar.  Helstu orsakir eru veðurfarslegar, oft myndast biðraðir við innritunarborð, hleðsla og afhleðsla flugvéla, tæknilegar ástæður eða keðjuverkandi orsakir þar sem flug kemur seint inn úr öðru flugi.

Til þess að við viðhöldum okkar góðu stundvísi og að viðskiptavinir okkar komist á áfangastað á réttum tíma, þá biðjum við farþega um að mæta eigi síðar en 30 mínútum fyrir brottför.  Einnig að persónuskilríki og farangur tilbúinn við innritun.  Allt flýtir það fyrir og gerir okkur enn frekar kleift að fara í loftið á réttum tíma. 


Til að fá upplýsingar hvort flugvél er á tíma er hægt að fara inn á vefinn okkar

www. flugfelag.is eða á textavarpið á blaðsiðu 423 ( brottför ) og 422 ( komur ).

Einnig er hægt að fá allar upplýsingar í síma 570-3060.


Kær kveðja

Stöðvastjóri Flugfélag Íslands

Brottfarardagur
Veldu dagsetningu
Heimkoma
Veldu dagsetningu
Lokafargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og eru ekki bókanleg
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára
Inspired by Iceland