Ilulissat
Ísjakar við Ilulissat
Grænlenskir sleðahundar

Nánar um Ilulissat

Bær borgarísjakanna
Ilulissat (Jakobshavn), sem er í vestur Grænlandi, er orðinn einn helsti áfangastaður ferðamanna á Grænlandi þar sem landslagið er tilkomumikið og jökulhljóðin áhrifamikil þegar hann brotnar og steypist í hafið.

Borgarísjakar
Hinn 56 km langi Ilulissat ís-fjörður, sem er fylltur risastórum borgarísjökum sem koma úr afkastamesta skriðjökli á norðurhveli, Sermeq Kujalleq, er staðsettur í miðjum Disco Bay flóanum og er á heimsminjaskrá UNESCO. Aðeins tveimur kílómetrum frá Ilulissat liggur hinn friðsæli Sermermiut dalur og opnar út í hinn ísiþakkta fjörð.

Áhugaverðar skoðunarferðir
Frá Ilulissat skipuleggja nokkrar ferðaskrifstofur dagsferðir og skoðunarferðir til byggðanna í Oqaatsut/Rodebay, til Eqi glacier, þar sem hægt er að eyða tveimur dögum í kofa, og í einni elstu byggð á Grænlandi, Ilimanaq, suður af Ilulissat ísfirðinum.

Sleðahunda bærinn
Ilulissat, þar sem búa 4.500 manns í dag og þar sem eru 3.500 sleðahundar, er einnig þekktur undir nafninu „Sleðahunda bærinn“ og eru ferðir á hundasleðum mjög vinsælar hjá ferðamönnum.

Dash-8 flugvélar Flugfélags Íslands fljúga til Ilulissat frá Reykjavík.

Efst á síðu

Gott að vita

Útbúnaður
Hvenær sem ætlunin er að heimsækja Grænland, hvort sem er um sumar eða vetur, er gott að kynna sér aðstæður áður en haldið er af stað.

Upplýsingasíða um ferðalög til Grænlands
Á síðunni finnur þú gagnlegar upplýsingar um allt sem snýr að ferðalagi til Grænlands. T.d. upplýsingar um fatnað, tungumál, gjaldmiðil, verslun, veiðileyfi, samgöngur, frídaga og fleira. Smelltu hér

Efst á síðu

Pakkar og tilboð

Pakkaferðir
Flugfélag Íslands gerir tilboð í flugverð fyrir hópa (10 eða fleiri). Að auki er hægt að fá tilboð í flug og gistingu fyrir einstaklinga sem og hópa.

Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá hópadeild Flugfélags Íslands í síma 570-3075 eða með því að senda okkur póst.

Efst á síðu


Brottför

Heimkoma


Gjaldmiðill

Tegund fargjalds