Austurland
Austurland gefur að bjóða stórbrotið landslag og lífríki,
blómlegt mannlíf og þjónustulundaða heimamenn. Sjón er sögu ríkari,
því er tilvalið að bóka hópferð til að skoða fjórðunginn með eigin
augum.
Gerum tilboð í flugverð fyrir hópa (10+)
Pakkaferðir
Flugfélag Íslands býður einnig upp á pakka sem innihalda flug og
gistingu. Allar upplýsingar er hægt að fá hjá hópadeild Flugfélags
Íslands í síma 570-3075 eða með því að senda póst á hopadeild@flugfelag.is
Senda
fyrirspurn
Merkar fornleifar
Óvæntir hlutir af óvenjulegum toga gætu líka gerst, og því ættu
allir að skoða landið sitt vandlega. Ekki fyrir margt löngu fundu
hjón á göngu eitthvað oddhvasst sem stóð upp úr jörðinni og líktist
sverði. Þegar betur var að gáð, lágu bein á víð og dreif. Einn
merkasti fundur íslenskrar fornleifa var hér á ferðinni, eða
Þórisárkumlið svonefnda, en haugbúi þess og hestur eru nú til sýnis
á Minjasafni Austurlands.
Menningarlífið
Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs í Sláturhúsinu á Egilsstöðum
mun standa fyrir fjölbreyttri dagskrá og menningarviðburðir eru
margvíslegir í boði á Egilsstöðum. Þekkingarsetur Austurlands
fræðir gesti og gangandi um allt undir sólinni.
Sigling á Lagarfjóti
Ýmsar aðrar verur úr forneskjunni eru til alls vísar, svo sem
hinn dulúðugi Lagafljótsormur. Hver veit nema hann sýni sig ef
hópurinn drífur sig í siglingu niður í Atlavík (Hallormsstað)?. Ef
ekkert sést til hans má fá sér pönnukökur í gamla Húsmæðraskólanum
og halda svo tilbaka.
Einstök útivistar perla
Möguleikar til útivistar, göngu- grasa- og ýmiskonar veiðiferða
eru engu líkar á Austfjörðum, og í veðurfarinu sem stundum er líkt
við meginlandsloftslag Evrópu, er svo sannarlega hægt að njóta
lífsins.
Lúxus fyrir líkama og sál
Hótel Hérað býður upp á lúxusgistingu og fyrir þá sem vilja
rækta líkamann er góð sundlaug á Egilsstöðum, jógamiðstöð og
líkamsræktarstöð! Sérstaklega lagnir handverksmenn geta svo boðið
uppá gripi til minningar um túrinn, og á matsölustöðum og
kaffihúsum má bragða á Austfirskum eðalréttum við allra hæfi.