English  Dansk
Forsíða

Ísafjörður

Vestfirðir

Á Ísafirði við Djúp er mikil náttúrufegurð og tilvalið fyrir þá sem hafa yndi af útiveru, stórbrotnu landslagi og fjölskrúðugu fólki að heimsækja þessar slóðir.

 

Stórkostlegar gönguleiðir

Gönguleiðir vísa fróðleiksþyrstum ferðalöngum á merka sögustaði, bæði mennska og ómennska. En í stórfenglegum fjöllum hljóta að búa tröll og forynjur. Eyðibýli, álfasteinar og huldufólkskletta er þar líka að finna.

 

 

Senda fyrirspurn

 

 

 

Verbúðarlífið

Við ströndina ólgar hafið, órjúfanlegur þáttur í daglegu lífi Íslendinga frá örófi. Í endurgerðri gamalli verbúð, Ósvör við Bolungarvík, má sjá gamla , fisjóbúðskihjalla og hvernig líf íslenskra sjómanna var á dimmum og köldum vetrarvertíðardögum.

 

Menning

Ísfirðingum hefur tekist að skapa vinalegt samfélag og einstakan menningarheim í bæ sínum. Nikkuböll í Neðstakaupstað eru tilvalinn fyrir hópinn sem kominn er til að kanna náttúru, mannlíf og menningu á Vestfjörðum. Slunkaríki er staður sem enginn má fara framhjá. Þar sýna jafnan fremstu listamenn þjóðarinnar verk sín.

 

Mannlíf

Margir bæjarbúar hafa mikinn áhuga á pólitík enda hafa Ísfirðingar lengi vel gegt lykilhlutverki í þjóðmálaumræðu Íslendinga. Í innanbæjarkosningum eru venjulega fjölmargir listar í boði, svo fjölbreytni er þar mikil í mannlífi.

 

Það geta allir sannreynt með því að eiga ógleymanlega daga við Djúp.

 

Gerum tilboð í flugverð fyrir hópa (10+)

Pakkaferðir
Flugfélag Íslands býður pakka sem innihalda flug og gistingu. Allar upplýsingar er hægt að fá hjá hópadeild Flugfélags Íslands í síma 570-3075 eða með því að senda póst á hopadeild@flugfelag.is


Samstarfsaðilar Flugfélagsins