Reykjavík
Hver vegna að fara langt yfir skammt til að skemmta sér- því að
fara til útlanda, þegar heimsborgin Reykjavík býður upp á nánast
allt sem erlendar stórborgir státa af.
Hvers vegna ekki að pakka niður í tösku og fara í hópferð til
höfuðstaðarins og eyða helginni í bænum og skoða hvaða nýjungar eru
í boði þar.
Menning og listir
Menningar- og listalíf borgarinnar er svo fjölbreytt að fáar
borgir státa af öðru eins.
Verslanir eru á heimsklassa og fjölbreytnin er geysileg í flestum
vöruflokkum. Fyrir þá sem vilja tolla í tískunni státar
Laugavegurinn af verslunum á heimsklassa, en fyrir þá sem vilja
vera innandyra, bjóða stærri verslunarmiðstöðvarnar Smáralind og
Kringlan upp á þægilegt umhverfi.
Senda
fyrirspurn
Umlukin fallegri náttúru
Náttúran er skammt undan, og eru fjölmörg skemmtileg
útivistarsvæði í og við Reykjavík sem gaman er að njóta og eiga svo
ævintýralegt kvöld í Reykjavík að lokinni frísklegri útivist.
Líkamsrækt við allra hæfi
Fyrir þá sem vilja stunda líkams- og heilsurækt alla daga
vikunnar, er af nógu að taka, og býður Reykjavík yfirleitt upp á
allar þær tegundir heilsuræktar sem hugurinn girnist.
Dagsferðir
Skipulagðar dagsferðir með farastjórum og leiðsögumönnum eru af
margvíslegum toga og hægt að fá uppýsingar hjá hópadeild
Flugfélagsins.
Einstakt næturlíf
Borgin hefur svo margar hliðar að engin leið er að kanna þær
allar í einni ferð. Næturlífið er orðið heimfrægt og hægt að
dansa frá sér allt vit á skemmtistöðum borgarinnar.
Komdu með hópinn þinn til Reykjavíkur og kannaðu málið.
Flugfélag Íslands býður hóptilboð allan ársins hring,
pakkaferðir með flugi og fyrsta flokks gistingu ásamt morgunverði á
frábæru verði til Reykjavíkur. Gerum einnig tilboð í flug
eingöngu.
Hópferð gefur kostur á margs konar upplifun á hverjum stað
t.d. fara í spennandi óvissuferð og njóta útivistar og líkamlegrara
endurnæringar í fögru umhverfi.
Gerum tilboð í flugverð fyrir hópa (10+)
Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá þjónustufulltrúa
hópadeildar í síma 570-3075 eða með því að senda póst á netfangið
hopadeild@flugfelag.is
Reykjavík - Pakkaferðir
Flugfélag Íslands býður einnig upp á pakka sem innihalda flug og
gistingu. Allar upplýsingar er hægt að fá hjá hópadeild Flugfélags
Íslands í síma 570-3075 eða með því að senda póst á hopadeild@flugfelag.is