English  Dansk
Forsíða

Akureyri og nágrenni

Verð 2012

24 mars - 14 jun
21 águst - 26 okt
ISK 42.765
15 júní - 20 ágúst
ISK 45.100
Börn: 50% af flugverði
Ungabörn: 10% af ofangreindu
 

Innifalið:

 
Flug: Reykjavík - Akureyri- Reykjavík. 
Leiðsögn í jeppa 
Flugvallarskattar.
Ekki innifalið  matur eða hressingar.

 

Tímabil

Þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga, allt árið.

Landslagið í kringum Akureyri er heillandi tilbreyting frá Suðurlandi og Reykjavík.


Eyjafjörður er lengsti fjörður landsins og umkringdur háum fjöllum. Akureyri liggur við sjávarsíðuna og rætur fjallanna. Jökuldalir og strandlengjan geyma frjósamar bújarðir eyfirskra bænda. Áhugaverðir sögustaðir eru hvarvetna á svæðinu.

 

Íbúar á Akureyri eru yfir 17 þúsund og þar er miðstöð stjórnsýslu og menningar á Norðurlandi. Akureyri er háskólabær sem skartar fjölmörgum söfnum og listagalleríum, þar er eitt af helstu leikhúsum landsins, áhugaverð byggingarlist og margt fleira. Gönguferð um Lystigarðinn að sumri til er ómissandi hluti af Akureyrarferð og almennt er bærinn gróðurríkur á öllum tímum ársins.


Litbrigði haustsins eru einstaklega falleg hér en í vetrarríkinu standa litrík hús upp úr snjónum. Gamli bærinn skartar húsum sem vitna um byggingarstíl 19. aldar og frá upphafi þeirrar tuttugustu.


Í boði eru fjögurra stunda ferðir sem veita innsýn í Akureyri og sveitirnar í kring. Ef veður leyfir ökum við upp í hlíðarnar fyrir ofan bæinn en þaðan má á góðum degi njóta stórfenglegs útsýnis yfir byggðina, fjöllin í kring, fjörðinn og út á haf.


Við förum um einn af dölunum í Eyjafirði (að vetri til er áfangastaðurinn háður veðri og vegaskilyrðum). Auk þess að njóta náttúrufegurðarinnar heimsækjum við sveitabæ, þiggjum léttar veitingar og skoðum húsdýrin.

Báðar leiðir Aðra leið
Brottför
Heimkoma
LokaFargjöld eingöngu fyrir fólk á aldrinum 12 - 25 ára og er biðlistafargjald.
Fullorðnir
Börn 2 til 11 ára
Börn yngri en 2 ára